Veldu öruggan og öflugan þjónustuaðila

Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á heildarlausnir í öryggismálum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. 
 
Fyrirtækið er eina öryggisfyrirtækið á Íslandi sem rekur sína eigin vaktmiðstöð til móttöku boða frá öryggiskerfum viðskiptavina.  Vaktmiðstöðin er að sjálfsögðu starfrækt allan sólarhringinn, alla daga ársins. 

Öryggismiðstöðin útvegar, setur upp og þjónustar allar mögulegar öryggislausnir sem bjóðast.
Öryggismiðstöðin var stofnuð árið 1995 og hefur fullt starfsleyfi til öryggisþjónustu frá Dómsmálaráðaneytinu. Fjöldi innlendra og erlendra úttektaraðila hafa tekið út starfsemi fyrirtækisins og vottað gæði hennar.  Starfmenn fyrirtækisins eru um 150 talsins.
 
Heiti fyrirtæksins í Fyrirtækjaskrá er Öryggismiðstöð íslands hf.  Kennitala félagsins er 410995-3369. Vsk. númer er 47794.