Fyrirtæki ársins hjá VR
Öryggismiðstöðin lenti í 2. sæti meðal stærri fyrirtækja í könnun VR á fyrirtæki ársins. Við erum stolt af árangrinum og því frábæra starfsfólki sem hjá okkur starfar.
Á vef VR segir um tilgang og fyrirkomulag valsins:
VR hefur staðið fyrir könnun á Fyrirtæki ársins í rúman áratug og síðustu fimm ár hefur SFR, stéttarfélag starfsmanna hins opinbera, tekið þátt. Þetta er stærsta vinnumarkaðskönnun á Íslandi og í ár fengu ríflega 30 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði spurningaeyðublað. Könnunin nær einnig út fyrir raðir VR og SFR því yfir eitt hundrað fyrirtæki og stofnanir tóku þá ákvörðun að veita öllum starfsmönnum færi á því að taka þátt, burtséð frá því í hvaða stéttarfélag þeir voru.
Markmið könnunarinnar er að skapa umræðuvettvang starfsmanna og stjórnenda um vinnustaðinn. Hún veitir starfsmönnum tækifæri til að koma skoðunum sínum og athugasemdum á framfæri og skapar þeim grundvöll til að ræða um starfsaðstæður sínar og kjör við sína yfirmenn. Niðurstöðurnar nýtast starfsmönnum einnig til að meta sinn vinnustað í samanburði við aðra vinnustaði, bæði í sömu atvinnugrein og í öðrum ólíkum greinum.
Og á sama hátt eru niðurstöður könnunarinnar mikilvægar fyrir stjórnendur því þær gefa þeim innsýn í afstöðu starfsmanna, sýna þeim hvar gera má betur í mannauðsstjórnun fyrirtækisins og hvað vel er gert. Þær eru þannig mælikvarði á frammistöðu þeirra í starfi. Aðstæður á vinnumarkaði nú gera það enn mikilvægara en áður að stjórnendur hafi þau tæki og tól sem þeir þurfa til að sinna sínu starfi og eru niðurstöður þessarar könnunar liður í því.
Til baka