Öryggisvörður á staðnum


Einn af hornsteinum í þjónustu Öryggismiðstöðvarinnar er mönnuð gæsla sem sinnt er af sérþjálfuðum öryggisvörðum. 
 
Bæði er um að ræða staðbundna þjónustu og eins vaktferðir þar sem öryggisverðir kanna ástand og öryggi bygginga og svæða.  Meðal stórra verkefna á þessu sviði má nefna staðbundna gæslu fyrir Smáralind, stjórnarráðsbyggingar, ÁTVR , Strætó og öryggisgæslu fyrir Faxaflóahafnir í samræmi við reglugerð um hafnavernd.
 
Þá hafa Öryggismiðstöðin og EA Security sameinað krafta sína undir merkjum Öryggismiðstöðvarinnar.  Þjónustuframboð Öryggismiðstöðvarinnar hefur þannig aukist enn frekar og fyrirtækið tekið afgerandi forskot sem leiðandi aðili á sviði mannaðrar öryggisgæslu hér á landi.

EA Security var stofnað árið 2002 af fyrrverandi lögregluþjónum og hefur sérhæft sig í viðburðastjórnun, lífvörslu, VIP gæslu, sérhæfðri öryggisráðgjöf og námskeiðahaldi fyrir dyraverði, öryggisverði og fyrirtæki.  EA Security hefur yfirburða markaðsstöðu á sínum sérsviðum og hefur komið að miklum fjölda verkefna er lúta að öryggisgæslu stærri viðburða s.s. tónleikum og heimsóknum heimskunnra erlendra aðila hingað til lands. 

Sú frábæra þjónusta sem EA Security hefur veitt til þessa verður efld enn frekar innan Öryggismiðstöðvarinnar og sérþekking beggja aðila nýtt til þess.  Starfsmenn EA Security hefja störf hjá Öryggismiðstöðinni en þeir hafa áralanga reynslu af öryggis- og löggæslustörfum og hafa víðtæka menntun í þeim fræðum m.a. frá Lögregluskólanum og erlendum lífvarðaskólum.
 
Öryggismiðstöðin leggur áherslu á að hafa ávallt yfir að ráða hæfu starfsfólki með sem býr yfir faglegri þekkingu og reynslu á sviði öryggismála. Allir öryggisverðir gangast undir stranga þjálfun og sækja námskeið sem miða að því að gera þá sem hæfasta í starfi. Verkeftirlit og endurmenntun eru meðal þeirra þátta.  Allir starfsmenn þurfa að skila inn hreinu sakarvottorði, ásamt því sem ferill þeirra er skoðaður nákvæmlega, áður en þeir hefja störf hjá fyrirtækinu.