Auðveldaðu utanumhald lykla og aðgengis
Það hefur færst mjög í vöxt að fyrirtæki kjósi að setja upp aðgangskerfi með rafrænum lyklum. Slíkt kerfi einfaldar til muna stýringu á aðgengi um húsnæði, umsýslu með lyklum ásamt því að veita mikla möguleika til skýrslugerðar.
 |
Hægt að er stýra aðgengi með nándarlesurum og aðgangskortum. Þá er í boði smartkortalausnir, fingrafaralesarar og augnskannar.
Öryggismiðstöðin býður í samstarfi við ástralska fyrirtækið Inner Range upp á heildarlausn fyrir aðgengismál. kerfið er mjög skalanlegt þannig að það hentar allt frá smáum fyrirtækjum upp í stærstu byggingar. Rúmlega 300 slík kerfi hafa verið uppsett hér á landi. |
Af hverju ættir þú að skoða aðgangsstýrikerfi?
- Týndir lyklar ekki lengur vandamál
- Enginn kostnaður við að skipta um skrár ef lyklar týnast
- Dýr master kerfi heyra sögunni til
- Veist nákvæmlega hverjir hafa lykla að hvaða dyrum í þínu fyrirtæki
- Einfalt að bæta við eða minnka aðgang hjá notendum
- Tímastýrður aðgangur
- Einn lykill / kort gengur að öllum dyrum sem þú hefur aðgang að, getur gengið að mörgum fyrirtækjum/heimilum
-
Allur umgangur skráður í hugbúnað - fullkomin skýrslugerð
-
Getur látið kerfið opna eða læsa hurðum á fyrirfram ákveðnum tímum
-
Einfalt í notkun, þarft ekki að stinga lykli í skráargat
-
Gleymist ekki að læsa hurðum, læsast sjálfkrafa
Heimasíður birgja: