Eigðu atburðinn á mynd

Vöktun með eftirlitsmyndavélum hefur á undanförnum árum sannað gildi sitt í flestum geirum viðskiptalífsins. 
 
Öryggismiðstöðin býður fjölbreytilegt úrval myndavélakerfa með stafrænni upptöku.  Hægt er að velja úr miklu úrvali hefðbundinna analogue myndavéla eða IP myndavéla allt eftir aðstæðum hverju sinni. 
 
Með stafrænni upptöku og einföldum notendahugbúnaði er tryggt að ávallt sé upptökur til staðar og aðgengi að þeim eins og best verður á kosið.