Fáðu símtal frá öryggisráðgjafa og prófaðu Heimaöryggi frítt í 2 mánuði! Án skuldbindingar um framhaldsviðskipti.
Gerður er samningur, bundinn til 36 mánaða, sem tekur sjálfkrafa gildi að prufutíma loknum. Hafir þú ekki áhuga á að halda kerfinu að prufutíma loknum þarftu að láta okkur vita fyrir lok prufutíma með því að senda póst á netfangið oryggi@oryggi.is eða í síma 570-2400.
Hver vaktar þitt heimili?
Á Íslandi eiga innbrot í heimahús sér stað nánast daglega og stafar flestum heimilum hætta af innbrotsþjófum. Þjófarnir valda ekki aðeins tjóni á eigum heldur geta þeir fjölmörgu aðilar sem hafa orðið fyrir innbrotum vitnað til um þær slæmu tilfinningar og öryggisleysi sem slíkur atburður leiðir af sér, ekki síst hjá börnum. Þá geta engar tryggingar bætt það tjón sem verður á eigum fólks sem hafa tilfinningalegt gildi. Heimaöryggi tryggir að ávallt sé brugðist rétt við innbrotum, bruna- eða vatnstjónum.
Öryggismiðstöðin veitir nú þegar þúsundum heimila um land allt aukið öryggi með Heimaöryggi.
Veldu lausn sem hentar þér! Þrír grunnpakkar í boði
Heimaöryggi fyrir fjölbýli
Kerfið hentar vel fyrir íbúðir í fjölbýlum og samanstendur af stjórnstöð, talnaborði, hreyfiskynjara, vatnsnema, hurðarofa og reykskynjara.
Heimaöryggi fyrir rað-/parhús
Kerfið hentar vel fyrir rað- og parhús og samanstendur af stjórnstöð, talnaborði, vatnsskynjara, hurðarofa, 2 hreyfiskynjurum, reykskynjara og fjarstýringu.
Heimaöryggi fyrir sérbýli
Kerfi sem hentar vel fyrir stærra íbúðarhúsnæði og samanstendur af stjórnstöð, talnaborði, vatnsskynjara, 2 hurðarofum, 2 hreyfiskynjurum, 2 reykskynjurum og 2 fjarstýringum.
Kerfin eru afar einföld í notkun og auðvelt að kenna börnum að umgangast þau.
Þjónustan felur í sér:
• Innbrotsviðvörun – þegar þú ert ekki heima.
• Næturgæslu – innbrotsviðvörun sem ver hluta af húsnæðinu á meðan þú sefur.
• Brunaviðvörun sem er í gangi allan sólarhringinn, allt árið.
Aðeins er greitt mánaðargjald – enginn stofnkostnaður!
Uppsetningarkostnaður er enginn og útkallsþjónusta öryggisvarða vegna raunútkalla frá kerfinu er innifalin í mánaðargjaldi.
Allir skynjarar kerfisins eru þráðlausir. Uppsetning tekur því skamma stund og lítið fer fyrir búnaði.
Hægt er að bæta við skynjurum eftir þörfum hvers og eins.
Í boði eru t.d.:
• Hreyfiskynjarar, sem taka mið af gæludýrum (allt að 36 kg.)
• Vatnsskynjarar
• Gasskynjarar
• Þráðlausir neyðarhnappar
• Rúðubrotsnemar
• Hitaskynjarar
• Hússtjórnarkerfi
Greiða þarf viðbótargjald fyrir hvern aukaskynjara.
Heimaöryggi er beintengt vaktmiðstöð Öryggismiðstöðvarinnar sem vaktar boð frá kerfinu, alla daga, allan sólarhringinn og bregst strax við boðum samkvæmt skilgreindri viðbragðsáætlun. Öryggisverðir okkar eru á ferðinni allan sólarhringinn allt árið um kring. Þegar viðvörunarboð berast til vaktmiðstöðvar er næsti öryggisvörður samstundis sendur á vettvang til að kanna ástand og gera viðeigandi ráðstafanir.
Öryggisvörður hefur lykil (ef óskað er) og kannar ítarlega orsök útkalls, hvort um raunverulegt hættuástand er að ræða eða ekki og yfirgefur ekki staðinn fyrr en öryggismálin eru kominn í rétt horf. Sé þörf á að kalla til lögreglu, slökkvilið og tengiliði er það að sjálfsögðu gert.
Allur boðbúnaður sendir prófunarboð með reglulegu millibili til vaktmiðstöðvar. Gerðar eru viðeigandi ráðstafanir ef bilunarboð berast um að kerfi nái ekki tengingu við vaktmiðstöð.
Viðskiptavinir okkar geta ávallt treyst á góða, persónulega og faglega þjónustu Öryggismiðstöðvarinnar.