Hringdu í síma 570-2400 eða sendu okkur línu hér og fáðu öruggari öryggishnapp.
 
Margfalt öryggi í einu kerfi!
 
Með öllum nýjum hnöppum fylgir nú:
 
  • Reykskynjari beintengdur stjórnstöð
 
  • Úttekt á öryggi og aðgengi húsnæðis sé þess óskað
 
  • Á stjórnstöð okkar eru hjúkrunarfræðingar á vakt allan sólarhringinn - alla daga ársins.
 
Ef þú ert með neyðarhnapp annars staðar þá getur þú skipt um þjónustuaðila án nokkurs aukakostnaðar
 
Númer eitt – Öryggishnappur – armband eða hálsmen

ÖryggishnappurÞegar þrýst er á öryggishnappinn heyrist fyrst viðvörunartónn á staðnum og boð berast strax til vaktmiðstöðvar Öryggismiðstöðvarinnar. Um leið og viðvörun birtist á skjá stjórnstöðvar opnast talsamband milli viðskiptavinar og öryggisvarðar. Hljóðneminn á tækinu er mjög næmur til að talsamband náist sem víðast í íbúðarhúsnæði.

Númer tvö – Hreyfiskynjari með ferlivöktun

HreyfiskynjariHreyfiskynjarinn sendir boð til vaktmiðstöðvar greini hann ekki hreyfingu í íbúð í tiltekinn tíma. Hægt er að stilla skynjarann frá 1–24 klst. Þannig má bregðast fyrr við ef viðkomandi hefur ekki fótaferð og getur ekki látið vita af sér með neyðarhnappi eða í síma. Hreyfiskynjarinn er staðsettur þar sem eðlilegt er að hreyfing sé með reglubundnum hætti , t.d. fyrir framan baðherbergi eða í stofu, allt eftir því hvað hentar.

Númer þrjú – Reykskynjari

ReykskynjariBoðið er upp á þráðlausan reykskynjara beintengdan vaktmiðstöð Öryggismiðstöðvarinnar. Tölur sýna að eldvörnum er verulega ábótavant hjá stórum hópi eldri borgara. Með reykskynjara tengdum kerfinu er tryggt að ávallt sé gripið til viðeigandi ráðstafana komi upp eldur. Kerfið lætur sjálfkrafa vita þegar skipta þarf um rafhlöður í reykskynjara og sinnir Öryggismiðstöðin þeirri þjónustu.
 
Númer 4 - Mottur sem skynja hreyfingu
 
MotturSvefn: Mottan er sett undir dýnu og greinir mjög nákvæm-lega andardrátt, hjartslátt og hreyfingar þess sem sefur. Mottan lætur sjálfkrafa vita af frávikum, t.d. ef viðkomandi fer fram úr og skilar sér ekki tilbaka innan tiltekins tíma.
 
Gólf: Mottan er sett á gólf og hægt að stilla þannig að hún sendi frá sér boð við minnsta þrýsting. Þannig er t.d. hægt að greina ef aðili, sem ekki ferðast um án aðstoðar, hefur í hyggju að fara fram úr.
 
Flog: Sérhönnuð motta sem greinir byrjunareinkenni floga-kasta. Mottan er sett undir dýnu og sendir boð án tafar þegar flogakast greinist. Þannig er hægt að bregðast strax við.
 
Númer 5 - Rápvörn
 
RápvörnÖryggishnappur sendir frá sér útvarpsbylgjur til móttakara sem staðsettir eru við útganga. Rápvörn hentar t.d. hluta Alzheimer sjúklinga og öðrum sem þarf að vakta á þennan hátt. Fari viðkomandi út úr íbúð eru boð send samstundis og hægt að bregðast strax við.
 
Númer 6 - Hjúkrunarfræðingar á vakt - allan sólarhringinn - alla daga ársins
 
HjúkrunarfræðingarÍ vaktmiðstöð Öryggismiðstöðvarinnar eru hjúkrunarfræðingar alltaf á vakt, alla daga ársins. Hnapphöfum býðst sá möguleiki að geta öllum stundum ráðfært sig við hjúkrunarfræðing komi eitthvað upp á sem veldur viðkomandi áhyggjum.
 
Númer 7 - Við hringjum og könnum ástand
 
ÚthringingarVið bjóðum upp á þá þjónustu að hringja reglulega í hnapphafa, t.d. einu sinni á sólarhring. Með símtali er m.a. unnt að minna á lyfjatöku, spyrjast fyrir um ástand og auka öryggiskennd hnapphafa þar sem hann finnur að vel er fylgst með sér.
 
Númer 8 - ýmsir aðrir skynjarar
 
Aðrir skynjararEinnig er hægt að fá hita-, vatns- og gasskynjara sem eru beintengdir við vaktmiðstöð.

Viðbrögð ef upp kemur vá

1. Þrýsti einstaklingur á öryggishnapp eða boð kemur um eld eða enga hreyfingu í íbúð fer skilgreind áætlun, sem stýrt er frá vaktmiðstöð Öryggismiðstöðvarinnar, í gang. Haft er samband við viðkomandi með talsambandi og ástand hans kannað.

2. Öryggisvörður með lykil að íbúð hins aldraða er samstundis sendur á staðinn.

3. Öryggisvörður grípur til viðeigandi aðgerða og aðstoðar eftir þörfum hverju sinni.

4. Vaktmiðstöð er beintengd Neyðarlínu 112 og kallar til sjúkra- og slökkvilið ef á þarf að halda.

5. Haft er samband við aðstandendur og aðra tengiliði.

6. Áður en öryggisvörður yfirgefur húsnæði er fulltryggt að öryggi og velferð hins aldraða sé eins og best verður á kosið.

Öryggisverðir okkar sækja reglulega sérhæfð skyndihjálparnámskeið til að vera sem best í stakk búnir til að sinna neyðarútköllum.

Niðurgreiðsla frá Tryggingastofnun ríkisins

TR niðurgreiðir þjónustuna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Það sem þú þarft að gera til að sækja um niðurgreiðslu:

1. Fáðu heilbrigðisstarfsmann sem þekkir til þinna aðstæðna, t.d. heimilislækni, iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara til að meta þörf fyrir þjónustuna og sækja um til TR.

2. Láttu okkur hjá Öryggismiðstöðinni vita að umsókn sé komin af stað til TR og við fylgjum málinu eftir fyrir þig. Við komum strax í heimsókn og tökum út aðra öryggisþætti á heimilinu og leggjum til úrbætur ef þörf er á.

Í framhaldinu afgreiðir TR umsókn og sendir staðfestingu til þín ásamt því að láta Öryggismiðstöðina vita um afgreiðslu málsins.
Hægt er að velja um það hvort búnaður er settur upp strax eða eftir að afgreiðsla TR liggur fyrir.
 
Hringdu í síma 570-2400 eða sendu okkur línu hér og fáðu öruggari öryggishnapp.