Hafðu öryggismálin í bílnum ávallt í lagi:
1. Allir eiga að nota bílbelti eða annan öryggisbúnað.
2. Loftpúði fram í – börnin aftur í.
3. Er neyðarþríhyrningurinn ekki örugglega í bílnum? Hann er skyldubúnaður.
4. Er slökkvitæki í bílnum? Lágmark 2 kg tæki.
5. Er sjúkrapúði í bílnum?
6. Eru allur búnaður í lagi s.s. demparar, bremsur, ljós? Prófið áður en lagt er af stað.
7. Eru dekkin í lagi? Lágmarks mynsturdýpt er 1.6mm. Er ekki örugglega varadekk og nauðsynleg tæki til að skipta um dekk?
8. Er farangurshólf/grind á toppi í lagi? Ekki of þunga hluti þar, þeir margfalda þyngd sína líka við árekstur og breyta þyngdarpunkti bílsins.
9. Er dráttarbeisli á bílnum? Þá þarf rafmagnstengið að vera í lagi.