Við ráðleggjum öllum að afhenda okkur lykla að því húsnæði sem á að vakta.
 
Við teljum það þjóna þínu öryggi best að við séum með lykil að húsnæðinu:
 
  • Til að öryggisverðir geti sannreynt eðli boða er nauðsynlegt að við höfum lykil og komumst inn í húsnæðið. 
  • Við teljum það ekki nægjanlegt öryggi að öryggisverðir kíki í gegnum glugga til að sannreyna eðli boða.
  • Oft á tíðum skiptir tíminn sköpum í útköllum og þá er afar slæmt að þurfa að bíða eftir að tengiliður komi með lykil. 
  • Við höfum mjög öflugt eftirlit með lyklum og strangar verklagsreglur varðandi notkun þeirra.
  • Þúsundir fyrirtækja og heimila treysta okkur fyrir lyklum. 
  • Að auki má  nefna að það er mjög mikið öryggi fólgið í því að vita að ávallt er hægt að kalla til öryggisvörð með lykil t.d. ef einhver læsist úti og enginn er nálægur með lykil.