Skilmálar
Samningur um Heimaöryggi
til 36 mánaða

Í skilmálum þessum er Öryggismiðstöð Íslands hf. nefnd verksali og sá aðili sem tilgreindur er á framhlið þessa samnings nefndur verkkaupi.

Skilmálar er varða vöktun boða og viðbrögð vegna þeirra eiga aðeins við ef búnaður er vaktaður frá stjórnstöð verksala eins og tilgreint er á framhlið samnings.

1. grein
Samningstíminn er tilgreindur á framhlið samnings og er samningurinn óuppsegjanlegur á þeim tíma.

Samningurinn er eftir það uppsegjanlegur með 3 mánaða fyrirvara og skal uppsögnin vera skrifleg og miðast við mánaðarmót.

Búnaður sem tilgreindur er á framhlið samnings þessa er eign Öryggismiðstöðvar Íslands og skal honum skilað við samningslok.
 
Verkkaupi ber ábyrgð á búnaði og er skylt að bæta verktaka allt það tjón sem á honum kann að verða.
 
2. grein
Verkkaupa er frjálst að láta verksala hafa lykil að vöktuðu húsnæði. Lykilinn er verksala eingöngu heimilt að nota við framkvæmd öryggisgæslu.

Þá skal verkkaupi tilnefna tengilið, einn eða fleiri, sem verksali getur haft samband við þyki ástæða til.
Verksali merkir húsnæði verkkaupa með viðvörunarmiðum samkvæmt samkomulagi.
 
Viðvörunarmiðarnir eru eign verksala og skal verkkaupi skila þeim þegar samningur rennur út eða fellur niður af öðrum ástæðum.
 
Verkkaupi skal tilkynna verksala allar breytingar á húsnæðinu sem geta haft áhrif á framkvæmd öryggisgæslunnar og vakttíma hennar.

Verksali áskilur sér rétt til að breyta gjaldi fyrir öryggisgæslu verði breytingar á vaktstað sem hefur áhrif á vakttíma.
 
3. grein
Verksali skuldbindur sig til þess að taka á móti neyðar- og viðvörunarboðum frá viðvörunarkerfinu allan sólarhringinn, alla daga ársins meðan samningur verksala og verkkaupa er í gildi.
 
Þá skuldbindur verksali sig til að senda öryggisvörð á staðinn  ef kerfið er innan útkallssvæðis verksala, berist neyðar- eða viðvörunarboð frá viðvörunarkerfinu, nema staðfest sé símleiðis með lykilorði eða öryggistölu að slíkt sé óþarft.

Verkkaupi ber allan símakostnað vegna boðsendinga frá kerfinu ásamt kostnaði vegna endurnýjunar rafhlaðna.
 
4. grein
Þjónustugjald er bundið launavísitölu og breytist mánaðarlega samkvæmt henni.

Verksali áskilur sér rétt til að endurskoða verð, en tilkynna skal um hækkanir umfram breytingar á launavísitölu með þriggja mánaða fyrirvara.
 
Ef greitt er með greiðsluseðli leggst á kostnaður við prentun og útsendingu í samræmi við gjaldskrá. Ef greitt er með greiðslukorti þá verða aðrir reikningar frá verksala einnig skuldfærðir á greiðslukortið, nema um annað hafi verið samið.

Gjalddagi þjónustugjalda er 6. hvers mánaðar.  Sé ekki greitt á eindaga reiknast hæstu leyfilegu dráttarvextir á þjónustugjöldin frá gjalddaga.

Standi vanskil í meira en 60 daga er verksala heimilt að gjaldfella allan samninginn og krefja verkkaupa um greiðslur á eftirstöðvum hans.

Verktaka er í slíkum tilvikum heimilt að rifta samningi, rjúfa tengingu viðvörunarkerfis við öryggismiðstöð, taka niður allan búnað í eigu verksala með atbeina dómstóla og sýslumanns ef nauðsyn krefur.
 
5. grein
Það er á ábyrgð verkkaupa að afturkalla strax öryggisvörð ef kerfi sendir frá sér boð vegna mistaka eða gáleysis.

Ef boð berast frá öryggiskerfi vegna gáleysis, ófullnægjandi frágangs á húsnæði eða sakar verkkaupa, er verksala heimilt að reikningsfæra útkall öryggisvarðar samkvæmt gildandi gjaldskrá verksala á hverjum tíma.
 
6. grein
Verkkaupi er ábyrgur fyrir að boðleið frá viðvörunarkerfi til stjórnstöðvar sé virk.
Eftir afhendingu kerfis eru allar viðbótarstillingar og breytingar sem verkkaupi óskar eftir rukkaðar sérstaklega samkvæmt gjaldskrá.

Einungis starfsmönnum á vegum verksala er á samningstímanum heimilt að hafa með höndum skoðun, viðhald og viðgerðir á búnaði, nema gegn skriflegu samþykki verksala.

 
Verksali ber ekki ábyrgð ef óviðráðanleg atvik, s.s. rafmagnsleysi, símabilun og ófullnægjandi upplýsingar frá þriðja aðila valda því að kerfið sendi ekki boð sem vænta mætti.

 
Verksali ber ekki ábyrgð á því að bæta tjón vegna mögulegra skrúfugata og/eða skemmda á málningu undir búnaði.

 
Verksali ber ekki ábyrgð á tjóni sem verða kann í húsnæði eða á hagsmunum verkkaupa nema verksali eða starfsmenn hans valdi því með saknæmum hætti.

 
Verksali ber þó aldrei ábyrgð á tjóni sem verkkaupa er unnt að kaupa vátryggingar fyrir.

7. grein
Rísi mál út af samningi þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.