Hér finnur þú svör við algengustu spurningum sem við fáum vegna Heimaöryggis. Ef þú finnur ekki svar við þinni spurningu þá sendu okkur línu með því að ýta
hér. Við erum til þjónustu reiðubúin!
Hvernig er brugðist við boðum frá kerfinu?
Það er skilgreint á framhlið samnings hvernig við bregðumst við boðum. Ef útkallsþjónusta er ekki í boði þar sem þú býrð er reglan sú að haft er samband við tengiliði sem þú skilgreinir. Þar sem útkallsþjónusta er í boði er misjafnt eftir eðli boða hvernig brugðist er við. Öllum neyðarboðum, s.s. innbrots-, eld-, vatnsleka-, gasleka- og árásarboðum er fylgt eftir með því að öryggisvörður á útkallsbíl sem er næst þínu heimili er án tafar sendur af stað í útkall. Sé um bilunarboð frá kerfinu að ræða er tengiliður látinn vita af bilun. Sé um boð um spennufall í stjórnstöð (rafmagnsleysi) að ræða er tengiliður látinn vita. Hægt er að óska eftir að öryggisvörður fari á staðinn og kanni aðstæður gegn greiðslu útkallsgjalds. Kerfið sendir prófunarboð einu sinni á sólarhring til stjórnstöðvar til að láta vita að virkni kerfis sé í lagi. Falli prófunarboð niður í tvö skipti í röð (48 klst.) er tengiliður látinn vita.
Hvaða tegundir af skynjurum eru í boði í Heimaöryggi?
Það er hægt að tengja margvíslega skynjara við Heimaöryggi s.s. hreyfiskynjara, reykskynjara, hurðaskynjara, vatnsskynjara, gasskynjara, rúðubrotsskynjara, hitaskynjara og neyðarhnappa. Við getum sniðið Heimaöryggi algjörlega að þínum þörfum.
Hvernig virkar kerfið, er hægt að fá kennslu?
Með kerfinu fylgja leiðbeiningar á íslensku. Við mælum eindregið með því að þær séu lesnar og geymdar á góðum stað. Ef þú hefur spurningar varðandi notkun á Heimaöryggi hafðu þá samband í síma 570-2400, opið virka daga frá 9-17. Við veitum fúslega leiðbeiningar um hvernig nota skal kerfið. Þú getur einnig óskað eftir að fá símtal frá okkur með því að smella
hér. Settu í athugasemd að þú óskir eftir að fá kennslu vegna Heimaöryggis. Ef þig vantar aðstoð utan opnunartíma skrifstofu þá er opið á vaktmiðstöð allan sólarhringinn, alla daga ársins. Síminn þar er 530-2400.
Eru skynjarar bara virkir þegar kerfið er á verði?
Nei, reykskynjarar, vatnsnemar, gasskynjarar, neyðar- og hitaskynjarar eru alltaf virkir jafnvel þó að kerfið sé ekki stillt á vörð.
Hvernig tengist öryggiskerfið stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar?
Öryggiskerfið er í sambandi við vaktmiðstöð í gegnum símalínuna þína (eða GSM hringibúnað þar sem símalína er ekki til staðar). Kerfið hringir eitt símtal í hvert sinn sem það er sett á vörð og tekið af verði. Kerfið hringir einnig inn prófunarboð einu sinni á sólarhring til þess að tryggja það að kerfið þitt sé í lagi og virkt. Ef prófunarboð falla niður í tvo sólarhringa höfum við samband við þig og látum vita um boðleysið. Í framhaldinu er hægt að gera viðeigandi ráðstafanir til að koma kerfinu aftur í virkni. Hvert símtal tekur örfáar sekúndur.
Hver er símakostnaðurinn við kerfi?
Sjá upplýsingar um hvernig kerfið tengist símalínu í svari hér að ofan.
Til að lágmarka kostnað vegna notkunar á símalínu bendum við viðskiptavinum á að kanna hvort símafélag þeirra býður upp einhverja leið að lækka kostnað, t.d. að velja innhringinúmerið sem vinanúmer. Hægt er að fá upplýsingar um hvaða símanúmer kerfið þitt hringir í, milli kl. 9 og 17 virka daga í síma 570-2400.
Getur kerfið slitið símtal ef það þarf að senda boð?
Kerfið er forritað þannig að það slítur símtal ef það þarf að senda boð. Það er ekki heldur hægt að hringja í númerið þitt og teppa þannig að kerfið sendi frá sér boð. Ef þú verður var við truflanir á símalínu, t.d. alltaf á sama tíma hafðu þá samband við okkur. Prófunarboð eru jafnan stillt þannig að þau hringja inn að næturlagi en þau geta truflað símalínuna í andartak.
Hvað ef rafmagnið fer af húsinu hjá mér?
Kerfið heldur fullri virkni þó að rafmagnið fari af húsinu. Allar einingar eru með varaafli og þráðlausir skynjarar með rafhlöðum. Kerfið lætur vaktmiðstöð vita ef rafhlöður eru að tæmast. Við höfum þá samband við tengiliði og/eða öryggisvörður er sendur á staðinn ef þess er óskað. Þannig hafa oft umtalsverð verðmæti bjargast t.d úr kæli- og frystiskápum.
Get ég fengið yfirlit yfir notkun mína á kerfinu?
Öll notkun á kerfinu er skráð í hugbúnað stjórnstöðvar og því hægt að fá skýrslur og rekja notkun ef með þarf.
Hvað þarf ég að hafa tilbúið þegar til uppsetningar á öryggiskerfinu kemur?
Símalína þarf að vera til staðar, kerfið notar hefðbundna heimilislínu. Gott er að vera tilbúin með 4 stafa kóða fyrir notendur sem eiga að geta sett kerfið á vörð og tekið það af verði, hægt að hafa mismunandi kóða fyrir hvern fjölskyldumeðlim ef þörf er á. Tveggja stafa öryggistölu þarf einnig að velja fyrir hvern og einn. Lista yfir þá sem skráðir verða tengiliðir vegna útkalla. Fullt nafn, símanúmer og farsímanúmer. Gott að hafa að lágmarki 2-3 tengiliði. Tengiliðir geta einnig verið aðilar sem ekki hafa kóða að kerfinu.
Hvað líður langur tími frá því að samningur er undirritaður, þar til öryggiskerfið er komið upp?
Þjónustumarkmið okkar er að setja Heimaöryggi upp innan 5 virkra daga frá undirskrift samnings.
Hvað tekur langan tíma að setja kerfið upp og veldur það miklu raski?
Uppsetning kerfis tekur 2-4 klukkutíma og veldur litlu raski þar sem allir skynjarar nema gasskynjarar eru þráðlausir. Því þarf ekki að leggja neinar lagnir. Stjórnstöðin sjálf þarf að vera í sambandi við símalínu og rafmagn.
Ég er með eða ætla að fá mér gæludýr, setur það kerfið í útkall?
Þegar gæludýr eru á heimili notum við sérstaka hreyfiskynjara sem nema ekki hreyfingar dýra upp að ákveðinni þyngd. Mikilvægt er að tilgreina gæludýrahald við gerð samnings til þess að tryggja rétta tegund skynjara. Ef þú ert nú þegar með Heimöryggi og von er á gæludýri á heimilið þarftu að hafa samband við okkur í síma 570-2400 eða sendu okkur skilaboð
hér.
Get ég haft kerfið á verði á nóttunni?
Já, kerfið býður upp á sérstaka næturstillingu. Hún virkar þannig að ákveðnir skynjarar fara á vörð í “næturstillingu”. T.d hurðarofar og hluti hreyfiskynjara án þess að hefta umgang heimilisfólks um salerni og jafnvel eldhús. Þetta ákveða húsráðendur í samráði við tæknimann við uppsetningu kerfis.
Hvað á ég að gera ef ég set kerfið í útkall fyrir mistök?
Þú tekur kerfið af verði með kóðanum þínum, hringir í vaktmiðstöð í síma 530-2400, tilkynnir mistök og að allt sé í lagi á staðnum. Þú verður spurður um öryggistöluna þína (annað en kóðinn) sem þú hefur valið sjálfur, til staðfestingar á því að þér sé heimilt að afturkalla öryggisvörð.
Kosta útköll öryggisvarða?
Útköll þar sem um raunverulega vá er að ræða, s.s. eldsvoða, vatnstjón eða innbrot, eru innifalin í mánaðargjaldinu. Við áskiljum okkur rétt til þess að rukka fyrir útköll sem eru af öðrum völdum, t.d vegna mistaka notenda sem ekki eru tilkynnt stjórnstöð eða t.d. ef opinn gluggi veldur útkalli. Það er öllum í hag að sem fæst fölsk útköll berist okkur. Við getum þá einbeitt okkur að raunútköllum og útkallstími helst stuttur. Sjáðu
hér hvernig lágmarka má fölsk útköll frá kerfinu þínu.
Eru öryggisverðir á ferðinni á nóttunni?
Öryggisverðir eru á vakt alla daga ársins, allan sólarhringinn. Öryggisvörður sem er næst þínu heimili er sendur af stað heim til þín um leið og útkall verður í kerfinu. Vaktbílar eru á ferðinni í öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins og helstu þéttbýliskjörnum á landsbyggðinni. Við erum ávallt í stakk búin að bregðast við útköllum.
Hvað eru öryggisverðir lengi á staðinn ef kerfið fer í útkall?
Markmið Öryggismiðstöðvarinnar er að vera innan við 10 mínútur á vettvang í útköllum. Um leið og boð berst frá kerfinu fer viðbragðsáætlun í gang á stjórnstöð. Öryggisvörður á útkallsbíl sem staðsettur er næst þínu heimili er samstundis sendur af stað. Ekki er hægt að segja nákvæmlega hversu lengi hann er á leiðinni því það fer eftir álagi á hverjum tíma og hversu mikil umferð er á götunum. Öll útköll eru skráð í hugbúnað á vaktmiðstöð og hægt er að fá upplýsingar um viðbragðstíma í hverju útkalli fyrir sig ef óskað er.
Hvað er öryggistala?
Þessi tala er notuð til þess að staðfesta hver þú ert þegar að þú átt samskipti við vaktmiðstöð. Gott er að nota tölu sem þú átt auðvelt með að muna, þar sem þú munt ekki þurfa að nota hana oft. Talan verður að vera 2 stafa. Þú getur skráð öryggistölu þína
hér.
Hvernig get ég skráð inn nýja tengiliði, aðgangskóða og öryggistölur?
Það er einfalt að bæta við notendum í kerfið með því að smella
hér. Ef skrá þarf inn nýja tengiliði tímabundið t.d. vegna ferðalaga tengiliða þá er það gert
hér.
Þarf Öryggismiðstöðin að hafa lykil hjá mér?
Við mælum eindregið með því að þú látir okkur hafa lykil að húsnæðinu. Það þjónar þínu öryggi best. Við teljum einfaldlega ekki nægjanlegt öryggi fólgið í því að öryggisverðir í útkalli staðfesti eðli boða með því að kíkja í gegnum glugga. Meira um nauðsyn lykla og verklag vegna þeirra má finna
hér.
Hvað ef ég flyt á samningstímanum?
Þá bjóðum við þeim sem kaupir húsnæðið af þér að yfirtaka samninginn á kerfinu. Ef hann samþykkir það þá bjóðum við þér að setja upp nýtt kerfi á nýja staðnum og gerum nýjan samning þar um. Ef nýr húsráðandi vill ekki taka kerfið þá getum við flutt það á milli fyrir þig samkvæmt tímagjaldi. Ef þú þarft að hætta alveg með kerfið, af einhverjum sökum, innan samningstíma þá þarf að greiða upp samninginn samkvæmt gildistíma hans.
Ég er að breyta húsnæðinu. Er hægt að bæta við búnaði á samningstímanum?
Já, hvenær sem er á samningstímanum er hægt að bæta við eða gera breytingar á kerfinu, hafðu samband við öryggisráðgjafa í síma 570-2400 eða sendu okkur skilaboð
hér. Við breytingar á kerfi innan samningstíma er boðið upp á viðbótarsamning með þeim aukabúnaði sem óskað er eftir.
Hvað er samningur um Heimaöryggi til langs tíma?
Samningurinn er bundinn til 36 mánaða. Eftir það er hann uppsegjanlegur með 3 mánaða fyrirvara.
Þarf ekki að yfirfara kerfið reglulega?
Kerfið lætur vita ef skipta þarf um rafhlöður í skynjurum. Jafnframt sendir kerfið prófunarboð einu sinni á sólarhring þannig að við látum vita ef eitthvað bilar. Viðskiptavinur hefur val um að fá tæknimenn Öryggismiðstöðvarinnar til þess að yfirfara kerfið á 2 ára fresti og sú prófun kostar klukkutíma vinnu auk kostnaðar vegna rafhlaðna ef það kemur til rafhlöðuskipta í skynjurum.