Öryggismiðstöðin býður fram þjónustu menntaðra heilbrigðisstarfsmanna og félagsliða sem aðstoða heimavið.
Þjónustan er algjörlega sniðin að þörfum þess sem hennar nýtur. Hvenær sem er sólarhrings - alla daga ársins.
Meðal verkefna sem við tökum að okkur með bros á vör eru:
• Afþreying: Erum til staðar þegar sinna á áhugamálum, fara í bíó, á kaffihús, í ferðalög, á tónleika, íþróttaviðburði, sinna leiklistaráhuga og í samveru, njóta lífsins sem best.
• Hreyfing: Hreyfing getur verið gönguferðir, sund eða önnur heilsurækt.
• Útréttingar: Aðstoð við innkaup, akstur milli staða.o.fl.
• Persónuleg aðstoð: Aðstoð við lyfjatöku, daglega umhirðu o.fl.
• Heimalærdómur: Við aðstoðum yngri kynslóðina og skólafólk við heimalærdóm eftir þörfum.
• Máltíðir: Aðstoð við að taka til mat, elda og ganga frá eftir máltíðir.
• Þrif: Aðstoð við að halda nánasta umhverfi hreinu og snyrtilegu.
• Snyrting: Snyrtisérfræðingar, fótaðgerðafræðingar og hárgreiðslufólk veita þjónustu í heimahúsum.
• Stuðningur við aðstandendur: Ef aðstandendur af einhverjum orsökum geta ekki sinnt ástvini getum við brugðist skjótt við.
Hafðu samband í síma 570 2400 eða sendu póst á oryggi@oryggi.is og kynntu þér þjónustu okkar betur.