-
Reykskynjara í öll herbergi. Öruggast er að hafa reykskynjara tengda við stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar sem tryggir þá rétt viðbrögð jafnvel þó enginn sé heima.
-
Slökkvitæki við hæfi. Athugaðu að láta yfirfara tækið árlega af löggildu verkstæði
-
Eldvarnarteppi í eldhús. Hægt er að kæfa smáelda og elda í pottum með hjálp teppisins.
-
Skilgreindu flóttaáætlun og flóttaleiðir fjölskyldunnar og hvar þið ætlið að hittast fyrir utan húsið ef upp kemur eldur.
-
Æfðu áætlunina með fjölskyldunni og tryggðu að allir viti hvernig þeir eiga að bregðast við komi upp eldur.