Ef íbúð er á fleiri en einni hæð, getur verið gott að tengja reykskynjara saman, þá flauta allir í einu ef einn skynjar reyk. Þessi skynjari hentar vel fyrir slíkar aðstæður.
- Optiskur reykskynjari frá BRK / Dicon
- Samtengjanlegir með vír, allt að 12 stk saman.
- Ef einn skynjar reyk, þá flauta allir sem tengdir eru saman.
- Rafhlaða er lithium sem er innsigluð og ekki hægt að skipta um.
- Rafhlöðuending er að lágmarki 10 ár m.v. venjulegar aðstæður.
- Er búinn prófunarhnappi og stopphnappi
- Viðvörunarhljóð er 85 dB við 3 metra
- Afar nettur aðeins 86 mm í þvermál og 37 mm á hæð
Hægt er að sækja vöru í Askalind 1, í Kópavogi, án endurgjalds.
Einnig er hægt að velja um að fá vöru senda heim að dyrum með Póstinum eða sækja hana á næsta pósthús gegn greiðslu skv. verðskrá Öryggismiðstöðvarinnar hverju sinni.