Við aðstoðum heimavið.  Þjónusta fyrir aldraða, fatlaða og sjúka.

 

Öryggismiðstöðin býður fram þjónustu menntaðra helbrigðisstarfsmanna og félagsliða sem aðstoða heimavið.

 

Þjónustan er algjörlega sniðin að þörfum þess sem hennar nýtur.  Hvenær sem er sólarhrings - alla daga ársins.

 

Meðal verkefna sem við tökum að okkur með bros á vör eru:

 

• Afþreying: Erum til staðar þegar sinna á áhugamálum, fara í bíó, á kaffihús, í ferðalög, á tónleika, 

                       íþróttaviðburði, sinna leiklistaráhuga og í samveru, njóta lífsins sem best.

 

•  Hreyfing: Hreyfing getur verið gönguferðir, sund eða önnur heilsurækt.

 

• Útréttingar: Aðstoð við innkaup, akstur milli staða.o.fl.

 

• Persónuleg aðstoð: Aðstoð við lyfjatöku, daglega umhirðu o.fl.

 

• Heimalærdómur: Við aðstoðum yngri kynslóðina og skólafólk við heimalærdóm eftir þörfum.

 

• Máltíðir: Aðstoð við að taka til mat, elda og ganga frá eftir máltíðir.

 

• Þrif: Aðstoð við að halda nánasta umhverfi hreinu og snyrtilegu.

 

• Snyrting: Snyrtisérfræðingar, fótaðgerðafræðingar og hárgreiðslufólk veita þjónustu í heimahúsum.

 

• Stuðningur við aðstandendur: Ef aðstandendur af einhverjum orsökum geta ekki sinnt ástvini getum við

   brugðist skjótt við.

 

Hafðu samband með því að smella hér eða hringdu í síma 570 2400 og kynntu þér þjónustu okkar betur,

 

Þeir sem njóta heimaþjónustu frá okkur fá öryggishnapp til afnota sem gerir þeim kleift að kalla tafarlaust eftir aðstoð í neyðartilvikum.  Kynntu þér Öryggishnappinn með því að smella hér.