0

hlutir í körfu

Samtals 0 kr.

Nánar

Heimaþjónusta

Við aðstoðum heimavið - þjónusta fyrir aldraða, fatlaða og sjúka einstaklinga

Öryggismiðstöðin býður fram þjónustu menntaðra heilbrigðisstarfsmanna og félagsliða sem aðstoða heimavið.

Þjónustan er algjörlega sniðin að þörfum þess sem hennar nýtur. Hvenær sem er sólarhrings - alla daga ársins.

Meðal verkefna sem við tökum að okkur með bros á vör eru:

• Afþreying: Erum til staðar þegar sinna á áhugamálum, fara í bíó, á kaffihús, í ferðalög, á tónleika, íþróttaviðburði, sinna leiklistaráhuga og í samveru, njóta lífsins sem best.

• Hreyfing: Hreyfing getur verið gönguferðir, sund eða önnur heilsurækt.

• Útréttingar: Aðstoð við innkaup, akstur milli staða.o.fl.

• Persónuleg aðstoð: Aðstoð við lyfjatöku, daglega umhirðu o.fl.

• Heimalærdómur: Við aðstoðum yngri kynslóðina og skólafólk við heimalærdóm eftir þörfum.

• Máltíðir: Aðstoð við að taka til mat, elda og ganga frá eftir máltíðir.

• Þrif: Aðstoð við að halda nánasta umhverfi hreinu og snyrtilegu.

• Snyrting: Snyrtisérfræðingar, fótaðgerðafræðingar og hárgreiðslufólk veita þjónustu í heimahúsum.

• Stuðningur við aðstandendur: Ef aðstandendur af einhverjum orsökum geta ekki sinnt ástvini getum við brugðist skjótt við.

Hafðu samband í síma 570 2400 eða sendu póst á oryggi@oryggi.is og kynntu þér þjónustu okkar betur.

// Til baka




Skipta um leturstærð


Skipta um tungumál


Leita






Senda ábendingu