VÍS eignast meirihluta í Öryggismiðstöðinni

Nýlega var gengið frá kaupum VÍS á hlut Exista í Öryggismiðstöð Íslands. Auk VÍS samanstendur hlutahafahópur Öryggismiðstöðvarinnar nú af helstu stjórnendum og framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Það eru fjölmörg tækifæri fyrir VÍS að fara með eignarhald í öryggisfyrirtæki sem er í góðum rekstri. VÍS er öflugt tryggingafélag þar sem forvarnir eru í fyrirrúmi. Með aukinni samvinnu við Öryggismiðstöðina gefst okkur tækifæri til að bjóða upp á víðtækari þjónustu til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar.

Öryggismiðstöðin hefur í rúm 15 ár boðið heildarlausnir í öryggismálum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Fyrirtækið rekur eigin stjórnstöð til móttöku boða frá öryggiskerfum viðskiptavina allan sólarhringinn, alla daga ársins. Árið 2008 færði Öryggismiðstöðin út kvíarnar og býður nú auk öryggisþjónustu upp á margvíslegar lausnir og þjónustu á velferðarsviði, s.s. heimaþjónustu til fatlaðra og eldri borgara, fjölbreytt úrval stuðnings- og hjálpartækja til einstaklinga og fyrirtækja auk lausna til aðlögunar húsnæðis.

Öryggismiðstöðin, eins og VÍS, er eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR 2011.



Til baka