Viðskiptatjóri - starf í boði
Öryggismiðstöðin auglýsir eftir öflugum starfsmanni í starf viðskiptastjóra á sölusviði.
Helstu verkefni:
• Myndun og stjórnun viðskiptatengsla
• Kynningar, söluráðgjöf, tilboðsgerð og eftirfylgni
• Þátttaka í sölu- og átaksverkefnum
Menntunar og hæfniskröfur:
• Víðtæk reynsla af sölustörfum og gott orðspor um árangur
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Hæfni í myndun nýrra viðskiptatengsla
• Drifkraftur ásamt áhuga, vilja og elju til að ná árangri í starfi
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Rík þjónustulund og jákvæðni
• Mjög góð íslensku- og tölvukunnátta
• Háskólamenntun er kostur
Um er að ræða framtíðarstarf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað. Öryggismiðstöðin er í hópi Fyrirmyndafyrirtækja VR árin 2010 og 2011.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Umsóknir er hægt að fylla út hér eða senda á netfangið atvinna@oryggi.is merkt “Viðskiptastjóri”. Vinsamlegast sendið inn ferilskrá með umsókn. Nánari upplýsingar um starfið veitir Daði Þór Veigarsson, sviðsstjóri sölusviðs, í síma 570-2400.
Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2012.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að allir starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði.
Til baka