- Hurðir og gluggar
Hafið hurðir ætíð læstar og glugga lokaða og krækta aftur.
- Læsingar og krækjur
Mikilvægt er að krækjur á gluggum séu traustar og læsingar sterkar og af viðurkenndri gerð.
- Lýsing
Góð lýsing utandyra fælir þjófa frá. Hugið sérstaklega að bakgarðinum þar sem þjófur hefur e.t.v. mest næði til að athafna sig.
- Verðmæti utandyra
Hafið öll áhöld, reiðhjól og önnur tæki læst inni.
- Stigar og verkfæri til innbrota
Læsið inni stiga og önnur verkfæri sem hægt er að nota til innbrota.
- Verðmæti innandyra
Ekki láta þá sem standa fyrir utan húsið sjá verðmæti eins og fartölvur, myndavélar og annað sem auðvelt er að koma í verð.
- Varist að auglýsa ferðalagið
Farið varlega í að tilkynna ferðalög og fjarveru af heimili, t.d. á símsvara eða internetinu (t.d. Facebook).
- Sérstakar ráðstafanir fyrir verðmætustu hlutina
Heppilegt er að koma dýrmætum hlutum eins og frímerkja- eða myntsöfnum, dýrum skartgripum o.þ.h. fyrir á öruggum stað, t.d. í traustum verðmætaskáp eða bankahólfi.
Takið einnig myndir af verðmætum hlutum og skráið raðnúmer þeirra.
- Látið líta út fyrir að einhver sé heima
Ef þið eruð fjarverandi af heimilinu í einhvern tíma:
• Hafið ljós kveikt eða útvarp í gangi.
• Gætið þess að blöð og póstur safnist ekki saman á sýnilegan hátt fyrir utanaðkomandi.
• Ef þið eruð fjarverandi um vetrartíma er gott að fá nágranna til að setja fótspor að inngangi.
- Setjið öryggiskerfi ávallt á vörð
Jafnvel þó heimilið sé einungis yfirgefið í skamma stund. Setjið öryggiskerfi á „næturstillingu“ þegar fjölskyldan fer að sofa.
Ímyndið ykkur að þið séuð læst úti - hvernig mynduð þið komast inn?
Þjófurinn notar líklegast sömu aðferð!
→ Fáðu öryggi í áskrift