Öryggismiðstöðin býður upp á þráðlausar aðgangsstýringar frá hinu þekkta fyrirtæki Assa Abloy :

Smartair :

smartair lock

Þráðlausar aðgangsstýringar frá Assa eru afar einfaldar, bæði hvað varðar notkun og uppsetningu. Hurðalæsingarsettið er með innbyggðum lesara, rafhlöðum og hurðahún. Ef hefðbundin læsing er til staðar (læsing fyrir lykil og hurðahúnn) þarf ekki að skipta um neitt í hurðinni sjálfri. Læsingin er einfaldlega skrúfuð úr ásamt hurðahúni og ný rafræn aðgangsstýring sett í staðinn - einfalt og hagkvæmt.

Aperio:

Aperio er þráðlaus lausn til aðgangsstýringar á hurðum þar sem The Aperio cylinderaðgangskerfi eru til staðar. Á einfaldan hátt er hægt að setja upp þráðlausan búnað á hurðar og ekki þarf að leggja lagnir í lesara og raflæsingar heldur er skráarbúnaði hurðar skipt út fyrir skrá með innbyggðum lesara og læsingu. Þessi skrá á svo þráðlaus samskipti við nálægan sendi sem tengdur er við aðgangskerfið sjálft.