Öryggismiðstöðin leitast við að eiga á lager algengustu gerðir leiðbeiningaskilta.

Skiltin eru ætluð til að leiðbeina um staðsetningu handslökkvitækja, brunaslangna o.þ.h. þau eru til bæði sjálfýsandi eða ekki.

Samkvæmt reglugerð um handslökkvitæki ber að merkja staðsetningu slökkvitækja og brunaslangna með viðurkenndu skilti.

Einnig eru fáanleg skilti til að merkja flóttaleiðir með táknum samkvæmt Evrópustaðli, og eru þau öll sjálflýsand í ákveðinn tíma.

Flest skiltin eru fáanleg annaðhvort sjálflýsandi eða ekki sjálflýsandi.

Vandaðir neyðarljósalampar eru líka á boðstólnum. Öryggismiðstöðin getur líka boðið fullkomin sjálfvirk neyðarlýsingakerfi, þar sem allir lampar eru vaktaðir af stjórnstöð.