Öryggismiðstöðin býður fjölbreytt úrval vandaðra númeraðra brunaviðvörunarkerfa og búnað fyrir þau, frá þekktum og viðurkenndum framleiðendum, m.a. Control Equipment, Global Fire og Apollo.
Sjálfvirk brunaviðvörunarkerfi samanstanda af:
Stjórnstöð, sem tekur við boðum, gefur merki og vaktar allan búnað.
Skynjarar, til dæmis optiskir og jóniskir reykskynjarar og hitaskynjarar.
Hljóðgjafar, til dæmis sírenur eða bjöllur.
Stjórnstöðvarnar eru af ýmsum stærðum og gerðum. Úrvalið tryggir að ávallt er hægt að velja hagkvæmustu lausnina fyrir viðskiptavininn.
Skynjarar í brunaviðvörunarkerfi eru frá Apollo i Englandi, sem er einn virtasti framleiðandi kerfisskynjara í heiminum í dag, enda eru Apollo skynjarar þekktir fyrir áræðanleika og fallegt útlit.
Stjórnstöðvar analogue kerfa eru af ýmsum stærðum algengast 1 til 4 slaufur. Byggingunni er skipt niður í svæði eins og í rásaskiptu kerfi og uppsetning og fjöldi skynjara á svæði er með sama hætti, en í þessum kerfum hefur hver skynjari vistfang (númer). Hægt er að setja 125 númer á hverja slaufu í stjórnstöðinni.
Stjórnstöðin þekkir því skynjarann sem gefur boð og gefur upplýsingar um það á skjá og/eða prentara, nákvæmlega hvaða skynjari gefur boð og hvar hann er staðsettur. Númeruð brunaviðvörunarkerfi hafa mikla möguleika til stýringa á ýmsum búnaði, til dæmis loftræsingum, brunalokum, reykræsingu o.fl.