Öryggismiðstöðin býður fjölbreytt úrval vandaðra númeraðra brunaviðvörunarkerfa og búnað fyrir þau, frá þekktum og viðurkenndum framleiðendum, m.a. C-Tec og Apollo.

Sjálfvirk brunaviðvörunarkerfi samanstanda af: 
Stjórnstöð, sem tekur við boðum, gefur merki og vaktar allan búnað.
Skynjarar, til dæmis optiskir og jóniskir reykskynjarar og hitaskynjarar.
Hljóðgjafar, til dæmis sírenur eða bjöllur.
 
Stjórnstöðvarnar eru af ýmsum stærðum og gerðum.  Úrvalið tryggir að ávallt er hægt að velja hagkvæmustu lausnina fyrir viðskiptavininn. 
 
Skynjarar í brunaviðvörunarkerfi eru frá Apollo i Englandi, sem er einn virtasti framleiðandi kerfisskynjara í heiminum í dag, enda eru Apollo skynjarar þekktir fyrir áræðanleika og fallegt útlit.

Rásakiptar stjórnstöðvar eru algengastar 2 - 4 og 8 rása, þá er viðkomandi byggingu skipt niður í svæði, til dæmis eftir hæðum eða húshlutum. Skynjarar eru síðan settir upp á þessum svæðum eftir ákveðnum reglum og eru þá skynjarar á tilteknu svæði ein rás í kerfinu. Ef eldboð berast frá skynjara þá kemur fram í stjórnstöðinni frá hvaða svæði boð hafa borist.