Þar sem skjótar viðvaranir skiptir öllu máli
 
Reyksogskerfi byggjast á þeirri tækni að sérstakur búnaður sogar sífellt loftsýni úr viðkomandi rými í gegn um sýnalögn og ofurnæman laser-skynjara sem getur gefið viðvörun á nokkrum stigum t.d. forviðvörun 1 og 2 og eldboð. Öryggismiðstöðin býður reyksogskerfi frá VESDA sem er einn virtasti framleiðandi slíkra kerfa í heiminum.

Ef óskað er eftir “ofurnæmum“ skynjurum þá eru reyksogskerfi vænlegur kostur, og henta afar vel til reykskynjunar í t.d. tölvusölum, rofasölum o.þ.h. svæðum., einnig í rýmum þar sem ekki gengur að hafa venjulega reykskynjara vegna óhreyninda eða mengunar.
Einn af kostum VESDA reyksogskerfanna er að þau “læra” þ.e. eftir gangsetningu er kerfið sett í ákveðna stöðu (AutoLearn™) í tiltekinn tíma, á þessum tíma finnur kerfið hvernig andrúmsloft viðkomandi rýmis er að jafnaði “meðaltal”. Kerfið velur síðan heppilegustu viðvörunargildin m.v. þessar upplýsingar.

Öryggismiðstöðin býður nú einnig upp á brunaviðvörunarkefi sem eru sérsniðin að aðstæðum í gripahúsum.  Í samstarfi við fyrirtækið Drengen í Noregi bjóðast nú viðurkennd brunaviðvörunarkerfi sem hafa margsannað ágæti sitt í gripahúsum.

Rannsóknir í Noregi hafa sýnt að sérhönnuð reyksogskerfi séu nánast það eina sem getur gengið vandræðalítið við þær erfiðu aðstæður sem eru til staðar í gripahúsum.