Öryggismiðstöðin flytur inn handslökkvitæki frá þekktum framleiðendum m.a. frá Jactone í Bretlandi og A. Werner í Þýskalandi. Slökkvitæki frá báðum aðilum hafa verið á markaði í áratugi og reynst afar vel.
Frá finnska fyrirtækinu Pivaset býður Öryggismiðstöðin fjölbreytt úrval brunaslönguhjóla.
Þetta eru bæði stök brunaslönguhjól til uppsetningar beint á vegg eða þá í innfelldum eða utanáliggjandi skápum.
Pivaset brunaslönguhjólin eru sérlega vönduð, skáparnir eru smekklegir og hægt er að velja um mismunandi útlit.
Brunaslönguhjólin eru úr 1 mm galvaniseruðu stáli, sprautað með epoxy duftlakki í rauðu. Öxull og naf eru úr kopar og hafa verið þolprófuð.
Skáparnir eru úr 1,5 mm galvaniseruðu stáli, sprautaðir með epoxy duftlakki í gráum lit ( Fáanlegt í hvítu eða rauðu- sérpantað). Hurðir opnast 180° og hjólið fylgir hurðinni.
Slangan á hjólinu er úr ” Nitrile/PVC” styrkt með léttofnum polyester. Vinnuþrýstingur er 1 Mpa og sprengiþrýstingur er 4 Mpa. Slangan kemur með snúnings stillanlegum stút fyrir beina bunu eða úða.
Slökkvitækjaþjónusta
Samkvæmt reglugerð um viðhald handslökkvitækja ber eiganda og / eða umráðamanni að láta viðurkenndan aðila yfirfara og skoða handslökkvitæki sín árlega.
Slökkvitækjaverkstæði Öryggismiðstöðvarinnar er viðurkennt af Brunamálastofnun ríkisins og Siglingastofnun Íslands, og hefur einnig hlotið vottun Det Norske Veritas og Lloyds Register til að annast viðhald slökkvitækja og annars búnaðar til brunavarna í skipum.
Starfsmenn slökkvitækjaverkstæðis Öryggismiðstöðvarinnar hafa m.a. lokið námskeiðum Brunamálastofnunar um eftirlit og viðhald með handslökkvitækjum.
Öryggismiðstöðin býður uppá alla slökkvitækjaþjónustu, m.a. reglubundið eftirlit samkvæmt þjónustusamningi, þolprófanir og endurhleðslu.