Við val á eftirlitsmyndavélum skiptir miklu máli að greina hvaða aðstæður eru á upptökustað og hvaða atburði á að taka upp.

Hér eru nokkur atriði sem hafa þarf í huga

Á vélin að vera inni eða úti?

Eru birtuskilyrði og lýsing góð?

Þarf andlitsmyndir eða yfirlitsmyndir?

Þarf að vera möguleiki á miklum aðdrætti ? (zoom)

Myndavélar geta verið fastar, kúlur og hreyfanlegar. Myndavélavalið byggist á aðstæðum hverju sinni.

IP myndavélar hafa ýmsa þjöppunarstaðla og hægt er að straumfæða þær í gegnum CAT5 kapla (POE). Helstu staðlar eru: H.264, MPEG-4 og Motion JPEG.

Upplausn mynda úr IP myndavélum er breytileg og fjöldi megapixla ræður myndgæðum.

Öryggismiðstöðin býður mikið úrval myndavéla sem henta öllum hugsanlegum aðstæðum og ráðgjafar okkar aðstoða við val á myndavélum.

Hér má t.d skoða heimasíðu framleiðandans Vivotek sem býður upp á mikið úrval myndavéla sem henta öllum aðstæðum.