Öryggismiðstöðin er umboðsaðili
Milestone IP upptökuhugbúnaðar á Íslandi og frumkvöðull hér á landi í innleiðingu IP myndeftirlitskerfa á íslenskum markaði.
Mögulegt er að tengja Milestone myndeftirlitskerfið við
Inner Range öryggis og aðgangskerfið sem gerir það að verkum að við skoðun atburða er hægt að fá myndskeið úr myndeftirlitskerfinu fyrir sama tímaskeið á einu augabragði
Milestone er leiðandi á heimsvísu í þróun og sölu slíks búnaðar og hafa verið í fararbroddi frá upphafi í þróun upptökuhugbúnaðar.
IP myndeftirlitskerfi byggist upp á myndeftirlitshugbúnaði, IP myndavélum og netbeini (switch) og tölvu sem vistar upptökur og keyrir hugbúnaðinn sjálfan.
Hugbúnaðurinn frá
Milestone styður flesta stærri framleiðendur IP myndavéla. Kerfið er byggt upp á grunnleyfi í mismunandi útgáfum eftir stærð kerfa og myndavélaleyfi fyrir hverja myndavél sem tengja skal við myndeftirlitskerfið. Notendaleyfi til umsjónar og skoðunar á myndefni eru ótakmörkuð og fylgja grunnleyfi.
Stækkunarmöguleikar Milestone myndeftirlitskerfisins eru miklir og velja þarf útgáfu sem hentar best þörfum hverju sinni.
Af hverju IP kerfi frá Milestone?
-
Opin samskipti við alla framleiðendur vélbúnaðar og myndavéla. Milestone einsetur sér að styðja allar helstu myndavélar á markaðnum.
-
Mpix myndgæði - hægt að velja úr hundruðum myndavéla með margra Mpix upplausn
-
Passar betur í rekstrarumhverfi fyrirtækja
-
Tengimöguleikar við annan hugbúnað – sjálfvirk afgreiðsla atburða/myndstrauma
-
Aukin sveigjanleiki, POE, þráðlausar lausnir o.fl.
-
Milestone er leiðandi á heimsmarkaði með yfir 70.000 IP kerfi uppsett á heimsvísu.
-
Þekking og reynsla Öryggismiðstöðvarinnar í uppsetningu og þjónustu IP myndavélakefa frá Milestone