Öryggis-, aðgangs- og hússtjórnarkerfi í einum pakka:

Öryggismiðstöðin býður í samstarfi við ástralska fyrirtækið Inner Range upp á fullkomlega samhæft öryggis-, aðgangs- og hússtjórnarkerfi. Kerfin frá Inner Range hafa fengið frábærar móttökur á Íslandi.

Hér á landi eru notendur Inner Range rúmlega 500 talsins og þeirra á meðal eru mörg af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum landsins. Á heimsvísu hafa verið sett upp yfir 100.000 Inner Range kerfi.

Inner Range býður upp á hagkvæmt, fullkomlega samhæft og skalanlegt kerfi sem stýrt ef með notendavænum hugbúnaði.

Mögulegt er að tengja Inner Range öryggis og aðgangskerfið við Milestone myndeftirlitskerfið sem gerir það að verkum að við skoðun atburða er hægt að fá myndskeið úr myndeftirlitskerfinu fyrir sama tímaskeið á einu augabragði. Einnig er hægt að tengja við kerfið þráðlausar aðgangsstýringar á hurðar með Aperio lausninni frá Assa Abloy svo eitthvað sé nefnt af þeim ótal möguleikum sem kerfið býður uppá.

Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 570-2400 eða sendu fyrirspurn á oryggi@oryggi.is og fáðu ráðgjöf um hvað hentar fyrir þínar aðstæður.