Eftir vandlega skoðun, ákvað Öryggismiðstöðin árið 2009 að ganga til samstarfs við enska fyritækið Lismore sem framleiðir m.a. INTERCALL IP sjúkrakallkerfi sem eru leiðandi á markaði í Englandi og eru núna einnig leiðandi á íslenskum markaði.
Intercall IP sjúkrakallkerfin hafa nú verið sett upp á öllum nýjum hjúkrunar og dvalar-heimilum sem tekin hafa verið í notku frá 2009 auk eldri heimila sem ráðist hafa í að endurnýja sinn búnað.
Meðal kosta INTERCALL IP sjúkrakallkerfa er einfaldleiki þeirra og sveigjanleiki, ásamt aðgengilegum hugbúnaði til greiningar á öllum aðgerðum í kerfinu þ.e. boðum um aðstoð, svörun boða auk margra annara aðgerða.
Gangvirkt tal er við herbergi/íbúðir íbúa, einnig er möguleiki á skjámyndakerfi með snertiskjá sem gefur bestu mögulegu yfirsýn yfir köll í kefinu, sem þá verða sýnileg á myndrænan hátt á grunnmyndum á snertiskjá.
Hluti INTERCALL IP sjúkrakallkerfisins eru þráðlausir innrauðir neyðarhnappar með einkenni notandans, sem gefa upp staðsetningu hans þegar þrýst er á hnappinn eftir aðstoð, að því tilskildu að samband sé við I/R móttakara. Auðvelt er að auka móttökusvæði hnappanna með fjölgun I/R móttakara, en þeir tengjast inn á greinar kerfisins hvar sem er í byggingunni.
Móttöku og samskiptabúnaður INTERCALL IP kerfisins getur auk hefðbundinna viðvörustöðva t.d. verið fullkomið þráðlaust DECT símkerfi frá Polycom KIRK. En með þvi er mögulegt að fá textaboð og hringingu í fyrirfram ákveðinn símama og svara boðum, með gagnvirku tali við íbúa.