Við veitum sértæka öryggisþjónustu þegar þess er óskað. Ef þú vilt t.d. að erlendir gestir þínir eða starfsmenn fái þá vernd sem þarf aðstoðum við að skipuleggja og framkvæma öryggismálin.
Við getum útvegað öll viðeigandi farartæki og sýnt viðskiptavinum perlur íslands á öruggan hátt. Við getum sótt gesti á flugvöll, komið þeim á hótel, ferðast með þá eins og þarf, sýnt þeim áhugaverða staði og skilað þeim aftur á flugvöllinn - á öruggan hátt.
Ferðalög og akstur
það er sama hvert för þinni er heitið, við getum útvegað þér þá gæslu sem þú þarft. Við getum útvegað glæsibifreiðar, bifreiðar með skotheldu gleri og jafnvel einkaþotur. Við höfum yfir að ráða starfsmönnum með lífvarðaréttindi sem geta tryggt öryggi þitt allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Verðskrá BMW 730Li 2008 árgerð - 2 til 3 manna Verðskrá Chevrolet Express Luxory Van - 7 til 8 manna