Vöru- og þjónustuframboð okkar spannar vítt svið öryggisþjónustu.  Við kappkostum að veita faglega, hraða og góða þjónustu og uppfylla kröfur og væntingar viðskiptavina.
 
Leitaðu upplýsinga um þjónustu okkar hjá einhverjum af þúsundum viðskipta Öryggismiðstöðvarinnar.  Okkar hlutverk er að halda þeim ánægðum.
 
Tæknisvið okkar telur um 60 sérfræðinga sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á öllum þeim búnaði sem við seljum og þjónustum.
 
Meðal búnaðar sem Tæknisvið okkar þjónustar eru
 
  • Brunaviðvörunarkerfi
  • Slökkvikerfi
  • Slökkvitæki
  • Innbrotaviðvörunarkerfi
  • Aðgangskerfi
  • Eftirlitsmyndavélakerfi
  • Vöruverndarhlið
  • Verðmætaskápar