Afar vandað handslökkvitæki sem er algengasta slökkvitækið fyrir heimili.
Hentar ekki í óupphituð sumarhús og ekki á eld í gasi. Í slíkar aðstæður henta duftslökkvitæki betur.
Léttvatn hefur þann kost fram yfir dufttæki að mun minni óhreinindi myndast við afhleypingu þeirra.
Fyrir eldflokka: A B
Innihald: 6 ltr. með AFFF 6%
Afköst: 13A 113B
Afhleypitími: 33,6 sek.
Ytri mál H x Þ: 517 x 160 mm
Þyngd fullhlaðið: 9,9 kg