Eldvarnafulltrúar
Stuðningur við eldvarnafulltrúa
Ábyrgð á eldvörnum er á hendi eigenda byggingar í samræmi við lög nr.75/2000, sem og forráðamanns hennar. Eigendum bygginga, sem lúta eftirliti slökkviliðs hvað eldvarnir varðar, ber að tilnefna eldvarnafulltrúa bygginga.

Stuðningur við eldvarnafulltrúa
Ábyrgð á eldvörnum er á hendi eigenda byggingar í samræmi við lög nr.75/2000, sem og forráðamanns hennar.
Eigendum bygginga, sem lúta eftirliti slökkviliðs hvað eldvarnir varðar, ber að tilnefna eldvarnafulltrúa bygginga.
Hann þarf að hafa lokið námskeiði á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar um hlutverk og skyldur eldvarnarfulltrúa.
Helstu ábyrgðarhlutverk eldvarnafulltrúa:
- fer fyrir samskiptum við slökkvilið fyrir hönd eiganda eða umráðamanns byggingar
- tekur þátt í tilkynntum eftirlitsskoðunum
- þarf að búa yfir þekkingu á brunavarnarlöggjöf
- þarf að þekkja brunatæknilegt fyrirkomulag viðkomandi byggingar
- tryggir að eigið eldvarnareftirlit sé framkvæmt með reglulegum hætti í samvinnu við eiganda byggingar
Eldvarnafulltrúi getur verið starfsmaður á vegum eiganda eða umráðamanns, eða faglegur aðili.
Öryggismiðstöðin getur aðstoðað við framkvæmd verkefna eldvarnafulltrúa eða séð alfarið um hlutverk og skyldur hans.
Tengdar vörur

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Pantaðu tíma hjá ráðgjafa
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um eldvarnafulltrúa.
Eða hringdu í síma
570 2400