Tjáskiptalausnir og umhverfisstjórnun
Tjáskiptatækni og aðgengi
Tjáskiptalausnir og umhverfisstjórnun er sitt hvor hluturinn en geta átt samleið í gegnum sömu tækni. Tjáskiptabúnaður er öflugt hjálpartæki sem gefur einstaklingum tækfæri til að eiga samskipti, taka ákvarðanir um eigið líf og hafa þannig áhrif á umhverfið sitt. Umhverfisstjórnun er einnig mikilvægur þáttur í lífi fólks sem býr við fötlun. Með umhverfisstjórnun er hægt að hjálpa einstaklingum að leggja stund á daglegar athafnir og stjórna mikilvægum rafmagnstækjum í eigin umhverfi með fjölbreyttum leiðum. Saman getur tjáskiptatæknin og umhverfisstjórnun aukið aðgengi og bætt lífsgæði fólks til lengri tíma.

Tjáskiptalausnir og umhverfisstjórnun
Við notum öll tjáskiptatækni í daglegu lífi hvort sem við gerum okkur grein fyrir því eða ekki. Tjáskiptatækni er samansafn af verkfærum og aðferðum sem einstaklingar notar til að takast á við áskoranir í tjáskiptum. Tjáskipti eru grundvallar mannréttindi og mikilvægur þáttur í að uppfylla möguleika á félagslegum þroska, tjáningu tilfinninga og möguleika til menntunar og atvinnu.
Við bjóðum upp á fjölbreyttan tæknibúnað til tjáskipta frá sænska fyrirtækinu Tobii Dynavox. Þeir hafa búið til öflugan hugbúnað sem getur nýtt sér íslensku raddirnar okkar sem gerir notandanum kleift að tjá sig með tali.
Til að auka aðgengi fólks að tækjum í umhverfinu sínu bjóðum við upp á fjölbreyttan búnað frá Abilia og Qinera til að brúa bilið. Umhverfisstjórnun gerir fólki kleift að fjarstýra tækjum t.d. halla rúminu sínu, kveikja og slökkva á ljósum, opna og loka hurðum, stjórna símum og tölvum. Hægt er að virkja þessar stýringar með ýmsum hætti m.a. stýripinnum, rofum, augnstýringu og tali.
Allur umræddur búnaður er mjög viðkvæmur og krefst þess að hann sé stöðugur og tryggilega festur niður. Armar og festingar frá Rehadapt t.d. gólfstandur, armur á hjólastól eða borðstandur getur auðveldað notkun á umræddum tæknibúnaði heima, í vinnu eða skóla.
Við bjóðum upp á faglega og sérhæfða ráðgjöf með það að markmiði að finna heildræna lausn í samvinnu við notanda og hans nærumhverfi.
TD i-110
TD i-110 er nýjasta útgáfan af tjáskiptatölvu sem keyrir á Windows stýrikerfi og getur talað íslensku. Hentar fjölbreyttum hóp einstaklinga m.a. með einhverfu og þeir sem eiga erfitt með tal. Kemur með snertiskjá og möguleika á tengi fyrir rofabúnað. Er hönnuð fyrir að vera á ferðinni og fylgja notendanum í gegnum lífið.
Tæknilýsing
- Skjástærð: 10.1"
- Stærð: 258 x 186 x 38 mm
- Þyngd: 1.15 kg
- Stýrikerfi: Microsoft Windows 10 Pro 64-Bit
- Myndavél: 13mp og 2mp
- Innrauður sendir: möguleiki á að nota sem fjarstýringu
- Qualcomm 850 - 8 kjarna 1.92 Ghz
- Minni: 8 GB
- Drif: 256 Gb
- Tengi: 1x USB 3.0, 2x 3,5mm rofatengi og 1x 3.5mm tengi f. heyrnatól
- Rafhlaða: Allt að 10klst m.v. hefðbundna notkun
- Hleðslutími: Allt að 4klst
Fylgihlutir
- I-110 með mjúkri hlíf
- Spennubreytir
- Ferðataska
- Axlaról
- TD Snap uppsett með íslensku viðmóti
- 3 ára ábyrgð

Ábyrgðarskilmálar
Upplýsingar um TD Care
Öll Tobii Dynavox tæki eru með framleiðsluábyrgð í tvö ár. TD I-110 inniheldur einnig TD Care, sem er framlenging á ábyrgð framleiðanda og býður upp á óviðjafnanlega vernd í öllum aðstæðum, þar á meðal ótakmarkaðar tjónakröfur fyrir slysni á ári á tækinu sjálfu, rafhlöðum og jafnvel hleðslutæki. Aðeins er hægt að kaupa og framlengja TD Care þegar tækið er keypt.
Fræðsluefni og bæklingar
i-Series 13" og 16"
I-Series er tjáskiptatölva með augnstýringu sem keyrir á Windows stýrikerfi og getur talað íslensku. Er hönnuð fyrir einstaklinga með sjúkdóma eins og CP lömun, Rett heilkenni eða MND taugasjúkdóm. Kemur í tveim skjástærðum 13" og 16" og er með möguleika fyrir rofabúnað. I-series er sérsmíðuð frá grunni til að gera fólki með fötlun kleift að hafa samskipti og auka sjálfstæði þeirra með augnstýringu ásamt öðrum tegundum af rofabúnaði.
Fylgihlutir
- I-13 eða I-16
- Stillanlegur botn
- Hleðslutæki
- Festing á bakhlið til að nota með Rehadapt
- Bólstruð ferðataska
- Leiðbeiningar til að koma þér á stað
- Þjálfunarkort
- Handbók
- 3 ára ábyrgð*
Tæknilýsing
- Skjástærð: 13.3" eða 15.6"
- Stærð: 343 x 241 x 81 mm
- Þyngd: 2,3 kg
- Stýrikerfi: Microsoft Windows 10 Pro 64-Bit
- Myndavél: 8mp og 2mp
- Innrauður sendir: möguleiki á að nota sem fjarstýringu
- Intel Core i5-7300U
- Minni: 8 GB
- Drif: 256 Gb
- Tengi: 2x USB 3.0, 2x 3,5mm rofatengi og 1x 3.5mm tengi f. heyrnatól
- Rafhlaða: Allt að 8 klst m.v. hefðbundna notkun
- Hleðslutími: Allt að 4,4 klst

Ábyrgðarskilmálar
Upplýsingar um TD Care
Öll Tobii Dynavox tæki eru með framleiðsluábyrgð í tvö ár. TD I-110 inniheldur einnig TD Care, sem er framlenging á ábyrgð framleiðanda og býður upp á óviðjafnanlega vernd í öllum aðstæðum, þar á meðal ótakmarkaðar tjónakröfur fyrir slysni á ári á tækinu sjálfu, rafhlöðum og jafnvel hleðslutæki. Aðeins er hægt að kaupa og framlengja TD Care þegar tækið er keypt.
Fræðsluefni og bæklingar
Hugbúnaður til tjáskipta
Öryggismiðstöðin býður upp á úrval af sérhæfðum hugbúnaði til samskipta, þjálfunar, sérkennslu og greiningu.
Hugbúnaður sem fylgir ákveðnum tjáskiptatölvum
- TD Snap - Samskiptaforrit með staðfærðum táknmyndum á íslensku
- TD Talk - Einfalt samskiptaforrit sem er ætlað að bæta tjáskiptatækni fyrir fullorðna
- TD Control - Forrit til að stýra aðgerðum í Windows stýrikerfi með augnstýringu
- TD Browse - Auðvelda aðgengi að veraldarvefnum með augnstýringu
Ókeypis hugbúnaður og kennsluefni:
- Pathways fyrir CoreFirst - Kennsluleiðbeiningar fyrir TD Snap Core first. Einnig til fyrir iOS
- TD Snap AAC - Snap + Core First er TST (AAC) hugbúnaður í tjáskiptatæki eða spjaldtölvu með stuðning fyrir íslensku.
- myTobiiDynavox - Skýjalausn fyrir vélbúnað og tjáskiptaforrit. Hægt að nálgast prufuaðgang af ýmsum forritum.
- Pageset Central - Aðgengi að tjáskiptaborðum fyrir TD Snap og Communicator 5 á íslensku og öðrum tungumálum
- Kennsluefni - Frítt kennsluefni frá Tobii Dynavox
Yfirlit yfir hugbúnað til tjáskipta

TD Snap
TD Snap er hugbúnaður til tjáskipta með íslensku viðmóti og orðasafni. TD Snap er sveigjanlegur hugbúnaður sem býður fagfólki og fjölskyldum upp á val um tjáskiptatækni (e. AAC). Byggir á staðfærðu táknmyndasafni aðlagað að íslensku.
- TD Snap Core First kemur uppsett með tjáskiptatölvum frá Tobii Dynavox
- TD Snap styður íslensku raddirnar Karl og Dóru
- Styður mismunandi stýringu t.d. snertiskjá, rofum, skönnun, augnstýringu, músarstjórn allt eftir færni.
- Hægt að vinna allar stillingar og síðusett innan forritsins og hentar því vel bæði fyrir fagfólk og aðstandendur
- Er í boði fyrir Windows og iPad, en íslensk rödd virkar ekki á iPad.

Communicator 5
C5 valdeflir einstaklinga sem glíma við tal - eða tungumálaörðuleika með því að umbreyta texta og táknum í skýrt tal á skilvirkan máta. Þessi samskiptalausn býður einnig upp á stjórna tölvu, símum og nánasta nærumhverfi, þar á meðal aðgang að fjölmörgum vinsælum samfélagsmiðlum og afþreyingar forritum.
- Táknmyndasafn með yfir 15 þús. SymbolStix og PCS myndum sem hægt er að nota til útprentunar eða notkunar í tjáskiptatölvum
- "Accessable Apps" fyrir þá sem nota augnstýribúnað (e. iSeries) og vilja betra aðgengi að Facebook, Netfilx, Youtube
- Styður umhverfisstjórnun (fer eftir vélbúnaði)
- Aðgangur að tilbúnu efni á íslensku og stuðningur við íslenskan talgervil
- Eitt leyfi virkar fyrir þrjár tölvur
- Styður i-Series og TD i-110

Boardmaker 7
Boardmaker byggir á myndabanka PCS (Picture Communication Symbols) og nýtist þeim sem þurfa myndrænan stuðning til tjáskipta eða við að gera málumhverfi skýrara með myndum. Boardmaker 7 er notað sem kennsluforrit fyrir alla aldurshópa, í ýmsum námsgreinum, sérkennslu, búsetukjarna, stofnunum eða á heimili.
- Búa til námsefni til útprentunar eða gagnvirk verkefni sem nemandi vinnur í tækinu sínu.
- Notendaviðmót forritsins er einstaklega þægilegt og þau verkfæri og aðgerðir sem þarf að nota innan seilingar á verkfærastikunni.
- Inniheldur allar nýjustu táknmyndirnar innan PCS myndasafnsins og er einnig samhæft við eldri útgáfur forritsins og því tapast ekki eldra efni.
- Eitt leyfisnúmer með virkan aðgang í 2 tölvur (2 activation)
- *Möguleiki að kaupa áskrift fyrir skóla og stofnanir

Look to Learn
Þjálfunarleikir til að efla færni í með augnstýringu. Yfir 40 sérhæfðir leikir/verkefni sem er bæði hvetjandi fyrir unga sem aldna. Hvert verkefni hefur verið þróuð í samráði við kennara og meðferðaraðila til að bæta aðgengi og færni í að velja. Möguleiki að stækka pakkan með 26 nýjum verkefnaleikjum. Verkefnin skiptast yfir á fimm svið:
- Skynjun - Hannað til að kenna orsök og afleiðingu
- Kanna – Hvetur notandann til að taka þátt í öllum skjánum
- Markmið – Hjálpar til við að bæta nákvæmni við augnstýringu
- Velja - Þróar færni til að velja
- Stjórnun – Fínstillir aðgang með augnstýringu

Magic EyeFX
Magic Eye FX hugbúnaðurinn hefur verið hannaður til að bæta aðgengi og tjáskiptafærni með skapandi verkefnum og leikjum. Hugbúnaðurinn styður augnstýringu, tal, skönnun, skjásnertingu, leikjastýringar, músa- og lyklaborðsinntak og býður upp á 100 sérhönnuð verkefni fyrir alla aldurshópa. Verkefnin eru flokkuð í fimm könnunarstig:
- SKJÁFÆRNI - Gerir notendum kleift að kanna orsök og afleiðingu; þegar þeir líta, gerist eitthvað! Þegar þeir líta undan hættir það!
- ÁHRIF - Verkefni sem gera notendum kleift að kanna hvernig augnaráð þeirra getur kallað fram viðbrögð frá hlutunum á skjánum.
- ÁHRIFASVÆÐI - Örva sjónræna athygli með því að hvetja notendur til að miða á ákveðin svæði á skjánum. Eflir færni við athygli og gefur færi á vali
- VIRK KÖNNUN - Áhugahvetjandi verkefni sem eru hönnuð til að ýta undir könnun og leik, hvetja til þátttöku á stærra svæði skjásins.
- NÁKVÆMNI - Stýrðar aðgerðir til að geta hjálpað notendum að ná meiri stjórn, meiri nákvæmni og ítarlegri skilning á dvalar (e. dwell) og rofavirkni.

Snap Scene
Snap Scene er einfalt og öflugt forrit sem gerir þér kleift að taka mynd, merkja hana með hljóðupptöku og gefa viðkomandi einstakling tækifæri til að eiga samskipti. Snap Scene breytir hversdagslegum augnablikum í ómissandi tækifæri til að læra að eiga náttúruleg samskipti
- Hjálpar þér að hefja og viðhalda félagslegum samskiptum
- Deila upplýsingum og tjá þarfir og óskir
- Nota ný orð og hugtök
- Sameina orð og hugtök til að tjá flóknari hugmyndir
- Fáanlegt sem ókeypis prufuáskrift
- Styður Windows og iOS stýrikerfi
Armar og festingar fyrir tjáskipta- og umhverfisbúnað
Til að geta nýtt sér búnað til tjáskipta eða umhverfisstjórnun er mikilvægt að hægt sé að koma honum þægilega fyrir daglega notkun.
Hvort sem þú ert á ferðinni eða heima þá bjóðum við upp á úrval af örmum og festingum. Við leggjum okkur fram að finna persónulega lausn sem hentar þínum þörfum.
Helstu lausnir
- Gólfstandur – hæðastillanlegur, ferðaútgáfu (hægt að leggja saman), krabbaútgáfu (þungt lóð fyrir miðju arm)
- Hjólastólaarmur – festur á stell, sæti eða bak, auðvelt að smella af og leggja saman (Magic Arm).
- Borðstandur – með klemmu (Magic Arm) og lausan með stömum fótum.
Meðal helstu eiginleika:
- Burðargeta armsins getur verið allt að 6kg
- Armar á hjólastól eru bæði léttir en jafnframt stöðugir til að einstaklingur geti treyst á að armurinn haldið stöðu við notkun
- Armarnir henta á allar tegundir af hjólastólum og bjóðum við upp á úrval festinga til að tryggja að enginn verði útundan.
Samsetningarmöguleikarnir eru óendanlegir og auðvelt er að finna réttu lausnina í samvinnu við fagaðila og notanda.
Fræðsluefni og bæklingar
Yfirlit yfir helstu lausnir

Monty 3D HD armur
- Sterkbyggður og öflugur armur til að festa á hjólastól
- Tekur allt að 3,2 kg.

Telelock gólfstandur
- Hækkanlegur gólfstandur sem býður upp á sveigjanlegan arm
- Tekur allt að 6 kg.

Ferða gólfstandur
- Hækkanlegur gólfstandur sem auðvelt er að fella saman og geyma í tösku


Aníta Jóhannesardóttir
Sérfræðingur / hjúkrunarfræðingur Velferð og ráðgjöfPantaðu tíma í ráðgjöf
Ráðgjafar okkar veita þér allar nánari upplýsingar um tjáskiptalausnir og umhverfisstjórnun
Eða hringdu í síma
570 2400