Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Almennar fréttir

Hægt að verja heimilið með ýmsum hætti gegn inn­brotum

Talsvert hefur verið um innbrot á heimili víða á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum mánuðum. Kristinn Loftur Einarsson, deildarstjóri hjá Öryggismiðstöðinni, segir mikilvægt að hugsa um ýmsar forvarnir til þess að vernda heimilið gegn innbrotum.

Þá sérstaklega þegar húsráðendur fara í frí með tilheyrandi fjarveru frá heimilinu.

Fyrst og fremst er gott að láta alltaf líta út fyrir að einhver sé heima við. Það er hægt að bæta við snjallreglu í öryggiskerfi sem gerir íbúum kleift að slökkva og kveikja ljós á ákveðnum tímum, eða kveikja og slökkva á útvarpinu. Það eru auðvitað mjög miklar forvarnir í því að vera með öryggiskerfi og merkingar ásamt öryggismyndavélum, segir Kristinn.

Öryggismyndavélar fyrir heimili eru fáanlegar í miklu úrvali og orðnar afar einfaldar í uppsetningu og notkun. Með þeim kemur app í símann og auðvelt er að fylgjast með heimilinu og fá viðvaranir um hreyfingu.

Mikilvægt er að allar hurðir séu vandlega lokaðar og læstar, gluggar kræktir aftur og að læsingarnar séu traustar og sterkar af viðurkenndri gerð. Lýsing er einnig góð þjófafæla, þá sérstaklega í bakgarði þar sem innbrotsþjófurinn hefur ef til vill meiri frið til að athafna sig. Einnig er hægt að vera með útiljós sem kvikna við hreyfingu og hefur það mikinn fælingamátt, segir Kristinn og bætir við að sýnileg verðmæti laði oft þjófa að verðmætum.

Það getur verið mjög gott að læsa inni verðmætustu útihlutina á borð við hjól, hlaupahjól og tæki sem líklegt er að þjófurinn hefði augastað á. Stigar og fleiri verkfæri sem þjófurinn gæti nýtt sér, ættu alltaf að vera kyrfilega læst inni. Verðmæti innandyra, svo sem tölvur og fleiri raftæki, ættu ekki að vera í augsýn ef litið er inn um gluggann. Ef um einstaklega verðmæta hluti er að ræða, jafnvel þá sem hafa tilfinningalegt gildi á borð við safngripi, snjalltæki, fartölvur, dýra skartgripi og fleira er gott að koma þeim fyrir í læstum verðmætaskáp sé þess kostur, segir hann.

Ekki auglýsa ferðalagið á samfélagsmiðlum

Kristinn nefnir einnig að gott sé að fá nágranna til þess að fjarlægja póst og blöð úr bréfalúgunni eða póstkassanum svo það verði ekki augljóst fyrir utan að enginn sé heima. Einnig er gott að fá nágranna eða einhvern nákominn til þess að líta reglulega við og jafnvel leggja í innkeyrsluna.

Það er mikilvægt að auglýsa ferðalagið ekki á samfélagsmiðlum fyrr en heim er komið, þar sem auðvelt er fyrir þjófa að leggja 2 og 2 saman og brjótast inn.

Arnór Freyr Guðmundsson

Viðskiptastjóri Sala og ráðgjöf

Pantaðu tíma í ráðgjöf

Ráðgjafar okkar eru við símann núna.

Eða hringdu í síma

570 2400