Bráðsnjöll eldvörn fyrir bílakjallara og opin stæði.
- LEADER STOP eldvarnarteppið er einföld lausn til að ná stjórn á eldi í bíl um leið og hann kemur upp.
- LEADER STOP kæfir eldinn og heftir útbreiðslu reyks og eiturefna sem borist geta frá honum með
tilheyrandi hættu.
- Notkun LEADER STOP kemur jafnframt í veg fyrir að eldurinn nái til nálægra bíla og valdi frekari skaða.
Á að koma upp hleðslustöð?
- Settu LEADER STOP upp í leiðinni. LEADER STOP er viðhaldsfrítt, sveigjanlegt 48 fermetra eldvarnarteppi sem má breiða á þægilegan hátt yfir flestar gerðir af bílum.
- LEADER STOP eldvarnarteppið er úr sterku hita- og eldþolnu glertrefjaefni sem slekkur eldinn með því að loka á súrefni til hans.
- LEADER STOP má einnig nota á mótorhjól, eld í ruslagámum og eld í vinnuvélum.
Af litlum neista verður oft mikið bál
- LEADER STOP býður upp á skjót viðbrögð sem hindra að bíll sem kviknar í verði alelda með tilheyrandi eignatjóni og slysahættu.
Leader Stop kemur:
- Í auðþekkjanlegu boxi
- Með nákvæmum leiðbeiningum
- með tveimur pörum af hlífðarhönskum
Auðvelt í notkun
- Það er fljótlegt tveggja manna verk að nota LEADER STOP í neyð.
- Mikilvægt er að láta eldvarnarteppið liggja kyrrt yfir bílnum í 20 mínútur hið minnsta til að tryggja að allur eldur slokkni.
- Einungis slökkviliðið má fjarlægja LEADER STOP af bíl sem kviknað hefur í.