Öryggiskerfi eru orðin ómissandi þáttur í daglegu lífi og veita okkur öryggistilfinningu, ró og yfirvegun, hvort heldur á heimilinu eða á vinnustaðnum. Þegar öryggiskerfi er valið er mikilvægt að hafa í huga að kerfið henti vel fyrir þær aðstæður sem því er ætlað að vakta. Öryggismiðstöðin er með fjölbreyttar og sérsniðnar lausnir í boði til að vernda fólk, dýr, húsnæði og önnur verðmæti fyrir hvers kyns vá.
Heimilisöryggi byggir á hefðbundnum öryggislausnum í bland við snjalllausnir og kerfinu má stjórna hvar og hvenær sem er með appinu í símanum. Öryggismiðstöðin sér um vöktun og viðbragð allan sólarhringinn alla daga ársins og ef boð berast frá kerfinu sendum við strax öryggisvörð á staðinn ef þörf er á því. Við sjáum einnig um uppsetningu og tryggjum persónulega og faglega þjónustu frá upphafi.
Með Heimilisöryggi öðlast þú öryggistilfinningu sem er ómetanlegt um leið og kerfið dregur verulega úr hættu á innbrotum. Heimilisöryggi gerir einnig viðvart um vatnsleka sem geta valdið miklu tjóni og reykskynjarar kerfisins eru tengdir stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar. Þannig vakir öryggiskerfið yfir því sem er þér dýrmætast, ekki bara þegar enginn er heima heldur líka á meðan heimilisfólkið sefur vært, vitandi að kerfið sér um vöktun og viðbragð.
Þegar þú ert fjarri heimilinu getur þú „kíkt heim“ þegar þér hentar og tekið „mynd eftir beiðni” í appinu með innbyggðum myndavélum hreyfiskynjaranna. Þannig sérðu hver staðan er á heimilinu; hvort allt er eins og það á að vera og hvað gæludýrin aðhafast. Þú stjórnar því hvort hægt er að taka myndir einungis þegar kerfið er virkt eða hvenær sem er. Til að vernda friðhelgi einkalífs stýrir þú einnig aðgangi að myndum sem eru teknar með appinu.
Í appinu getur þú fylgst með stöðu kerfisins, fengið tilkynningar, stýrt aðgengi notenda og haft yfirsýn yfir marga staði á einum stað, til dæmis bæði heimili og sumarhús.
Einnig er hægt að tengja sérstakar myndavélar við kerfið sem henta bæði til notkunar innan- og utandyra, sem og annan snjallbúnað eins og læsingar.
Hægt er að hafa ákveðna hluta kerfisins á verði, til dæmis á meðan fólk sefur. Ef gæludýr eru á heimilinu er hægt að fá hreyfiskynjara með gæludýravirkni.
Verð 8.900 kr. á mánuði
Verð 9.900 kr. á mánuði
Í Heimilisöryggi er innifalið:
Auðvelt er að stækka Heimilisöryggi með greiðslu á stofnkostnaði á umfram skynjurum eftir þörfum.
Samningur er gerður til 24 mánaða.
Leiðbeiningar fyrir Heimilisöryggi
Leiðbeiningar fyrir Snjallöryggi
Í Heimilisöryggi er boðið upp á hreyfiskynjara með myndavél. Hægt er að skoða myndefni úr skynjaranum í streymi og hægt að skoða upptökur af efni sem skynjarinn tekur upp, t.d. þegar skynjarinn nemur hreyfingu þegar kerfið er á verði. Hafa ber í huga að myndavélin er ekki í hágæðum þar sem tilgangur hennar er að veita yfirsýn en ekki greina smáatriði. Hún gengur fyrir AA rafhlöðum sem endist í 1-2 ár eftir notkun.
Allt að 200 geta haft aðgang að Heimilisöryggis appinu. Einnig standa til boða allt að 200 aðgangsflögur.
Þjónustugjöld breytast með þróun launavísitölu sem gefin er út af Hagstofu Íslands hverju sinni.
Við flytjum Heimilisöryggi að kostnaðarlausu sé samningur endurnýjaður með nýjum binditíma.
Allur endabúnaður Heimilisöryggis er í dulkóðuðum samskiptum og ekki tengdir interneti. Appið er hinsvegar tengt internet í gegnum þráðlaust net eða farsímanet notanda. Um notkun þess og öryggi gilda sömu reglur og um önnur öpp. Gæta skal þess að skipta um lykilorð reglulega og ekki nota lykilorð sem notuð eru í öðrum þjónustum. Með því að huga vel að netöryggi sínu má sporna gegn langflestum áhættuþáttum sem fylgja notkun snjalltækja á interneti. Heimilisöryggi keyrir á þekktum og margreyndum grunni þar sem öryggi er í hávegum haft.
Viðskiptavinur þarf að veita tækniþjónustu Öryggismiðstöðvarinnar aðgang að Heimilisöryggi til þess að hægt sé að veita þjónustu. Notandi fær þá tilkynningu þess efnis. Allar aðgerðir í Heimilisöryggi vistast í atvikaskrá og tilkynning berst notanda að þjónustu lokinni. Tilkynningar berast notanda í Heimilisöryggis appið.
Já, það er mjög aðgengilegt að stofna nýja notendur í Heimilisöryggi og loka aðgengi þeirra aftur. Það er gert í Heimilisöryggis appinu.
Nei, það er einfalt að bæta við fleiri skynjurum í Heimilisöryggis appinu og úrval viðbótarskynjara fyrir Heimilisöryggi má finna í vefverslun Öryggismiðstöðvannar. Hægt er að hafa allt að 32 aðgangsflögur við hvert Heimilisöryggi og 32 aðgangskóða.
Allur endabúnaður Heimilisöryggis(skynjarar og snjalltæki) er í dulkóðuðum (AES) samskiptum við stjórnstöð öryggiskerfisins og eru þar af leiðandi ekki tengdir interneti.
Intenet samskipti fara öll fram í gegnum stjórnstöð öryggiskerfisins. Stjórnstöð öryggiskerfisins er í dulkóðuðum (AES) samskiptum við skýjalausn Heimilisöryggis þar sem gögn eru vistuð og meðhöndluð í vottuðu gagnaveri í Evrópu.
Heimilisöryggis appið er í dulkóðuðum (SSL/HTTPS) samskiptum við skýið. Myndstraumar eru sendir með dulkóðuðum (ECOP2) samskiptum.
Langflestir gallar og öryggisrof eru almennt í búnaði sem hlýtur ekki virka umsjón og er ekki uppfærður reglulega m.t.t. öryggisgalla eða nýuppgötvaðra ógna.
Heimilisöryggi er í virkri umsjón og vöktun og notast við dulkóðaðar upplýsingar allt frá skynjaranum og alla leið í snjallsímann.
Viðskiptavinur hefur ávallt val um hvort hann velji að hafa myndavélar í vistarverum sínum og þá hvar slíkur búnaður er staðsettur.
Heimilisöryggi og þjónustuaðilar þess uppfylla öll ákvæði persónuverndarlaga (GDPR). GDRP setjur ríkari skorður á söfnun upplýsinga, meðhöndlun þeirra og varðveislu.
Framleiðandi Heimilisöryggis og Öryggismiðstöðin eru ekki í neinum tilfellum að dreifa persónugreinanlegum eða ópersónugreinanlegum upplýsingum til þriðja aðila.
Almennt um netöryggi:
Það fylgir því áhætta að vera á netinu. Fjölmörg öpp í snjallsímanum þínum hafa t.d. aðgang að myndavélinni í símanum þínum. Almennt metur fólk ávinning og þægindi við notkun á móti áhættu. Ekkert er svo öruggt að það sé 100%. Með virkri umsjón og uppfærslum má sporna við langflestum áhættuþáttum. Heimilis öryggi keyrir á þekktum og margreyndum grunni þar sem öryggi er í hávegum haft og allt ferlið dulkóðað.
Stærsti veikleiki öryggismála er yfirleitt óábyrg hegðun notenda – notandi þarf að passa mjög vel upp á upplýsingar sínar og lykilorð og mælt er með að breyta lykilorði með regulegum hætti.
Ýmsar hættur fylgja internetinu eins og t.d. ólöglegar niðurhalssíður sem geta reynst varasamar og ógnað öryggi lykilorða. Með því að gæta vel að lykilorðum og huga vel að netöryggi sínu geta notendur lágmarkað áhættu af notkun snjalltækja á interneti.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um Heimilisöryggi.
Eða hringdu í síma
570 2400