Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Öryggisnámskeið

Þjálfun í réttum viðbrögðum

Öryggismiðstöðin býður viðskiptavinum sínum öryggisnámskeið fyrir starfsfólk í í afgreiðslu- og þjónustustörfum sem getur alltaf átt hættu á því að lenda í einstaklingum sem sýna ógnandi hegðun.

Bóka námskeið
Öryggisnámskeið

Þjálfun gagnvart ógnandi hegðun

Öryggismiðstöðin hefur um langt skeið boðið viðskiptavinum sínum öryggisnámskeið fyrir starfsfólk í í afgreiðslu- og þjónustustörfum sem getur alltaf átt hættu á því að lenda í einstaklingum sem sýna ógnandi hegðun. Rétt viðbrögð í slíkum aðstæðum geta skipt öllu máli.

Á námskeiðinu er m.a. farið yfir: fjallað um varnir og viðbrögð við ógnandi hegðun, og hvernig æskilegt sé að bregðast við komi til atvika sem slíkra.

Meðal annars er farið yfir:

  • varnir og viðbrögð við ógnandi hegðun einstaklinga
  • hvernig æskilegt er að bregðast við ógnandi hegðun og ofbeldi af hálfu einstaklinga
  • hverju æskilegt er að reyna að horfa eftir komi til ógnandi eða ofbeldisfulls atviks
  • hvernig æskilegt er að svara ofbeldisfullum einstaklingi, bæði símleiðis og í eigin persónu
  • hvað æskilegt er að gera eftir á til að veita lögreglu sem bestar og nákvæmastar upplýsingar um málsatvik

Farið er vel yfir líkamstjáningu og líkamsstöðu í dæmigerðu ofbeldisfullu atviki þannig fólk geti fengið smjörþefinn af því hvernig bregðast skuli við.

Kennarar á námskeiðinu hafa umfangsmikla reynslu af margs konar öryggisstörfum.

Námskeiðið er um það bil klukkutími.

Hámarksfjöldi 25 manns.

Þjálfun gegn rýrnun og þjófnaði

Námskeið um varnir gegn rýrnun og þjófnaði í verslunum eru einnig í boði en rýrnun er vaxandi vandamál í verslunum.

Á námskeiðinu er farið yfir forvarnir gegn þjófnaði, hverju er stolið, hverjir stela og af hverju. Einnig er farið yfir rétt viðbrögð er upp kemur rökstuddur grunur um þjófnað.

Fleiri námskeið

Einnig eru í boði námskeið um umgengni við öryggiskerfi , brunaviðvörunarkerfi, rýmingar, skyndihjálp og fleira.

Kennarar á öryggisnámskeiðum hafa umfangsmikla reynslu af fjölbreyttum öryggisstörfum.

Tengdar vörur

IMOU Cruiser 4G

IMOU Cruiser 4G

Netverð 33.282 kr
Almennt verð 36.980 kr
Ekki til á lager
AJAX fjarstýring - Svört

AJAX fjarstýring - Svört

Netverð 3.659 kr
Almennt verð 4.878 kr
Ekki til á lager
Flaga fyrir Snjallöryggi

Flaga fyrir Snjallöryggi

Netverð 1.341 kr
Almennt verð 1.490 kr
Ekki til á lager
Hreyfiskynjari gæludýr Snjallöryggi

Hreyfiskynjari gæludýr Snjallöryggi

Netverð 8.911 kr
Almennt verð 9.901 kr

Þorsteinn Grettir Ólason

Öryggisráðgjafi

Pantaðu tíma hjá ráðgjafa

Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um öryggisnámskeið.