Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Aðgangskerfi

FULLKOMIN AÐGANGSSTJÓRNUN

Aðgangskerfi gera notendum kleift að halda utan um aðgangsheimildir. Þau tryggja meðal annars rekjanleika aðgengis með aðgangsheimildum á aðgangskorti eða farsímaskilríkjum sem skilgreina heimildir til umgengni.

Panta þjónusturáðgjöf
Nákvæm aðgangsstýring

Aðgangskerfi gera notendum kleift að halda utan um aðgangsheimildir. Þau tryggja meðal annars rekjanleika aðgengis með aðgangsheimildum á aðgangskorti eða farsímaskilríkjum sem skilgreina heimildir til umgengni.

Helstu kostir aðgangskerfa:

  • Öruggt og snjallt utanumhald um aðgengi - kemur í stað týndra lykla
  • Einföld og skýr yfirsýn yfir allar aðgangsheimildir notenda og tímastýringu þeirra
  • Auðvelt er að bæta við tímabundnum aðgangi eða loka honum
  • Sambyggð öryggis- og aðgangskerfi nýta sama kerfi og viðmót

Ítarleg atburðaskráning tryggir rekjanleika

Öll umgengni er skráð í gagnagrunn og á einfaldan hátt er hægt að nálgast upplýsingar um notendur og umgengni á aðgengilegu skýrsluformi ef á þarf að halda.

Aðgangskerfi geta læst og aflæst rýmum á fyrirfram ákveðnum tímum, sem getur einnig verið misjafnt á milli daga ef þörf krefur.

Fjölbreyttir aðgengismöguleikar

Opnun hurða getur verið með aðgangskorti, farsíma, spjaldtölvu, appi eða í gegnum miðlægan hugbúnað stjórnenda kerfisins - allt eftir þínum hentugleika.

Nýttu saman kosti öryggis- og aðgangaskerfa

Sambyggð öryggis- og aðgangskerfi njóta mikilla vinsælda en þeim er hægt að stjórna miðlægt í notendavænum stjórnhugbúnaði í einu og sama viðmótinu.

Slík kerfi geta meðal annars

  • vaktað boð frá viðvörunarskynjurum
  • stýrt aðgengi hurða og hliða
  • vaktað hitastig rýma
  • stýrt ljósanotkun

Aðgangskerfi fást í mörgum útgáfum og sérfræðingar okkar veita ráðgjöf við val á hentugri lausn.

Integriti kennslumyndbönd

Tengdar vörur

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Netverð 11.224 kr
Almennt verð 15.397 kr
Ekki til á lager

Arnór Freyr Guðmundsson

Viðskiptastjóri Sala og ráðgjöf

Björgvin Már Óttarsson

Öryggisráðgjafi Sala og ráðgjöf

Pantaðu tíma hjá ráðgjafa

Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um aðgangskerfi.