Fjölbreytt þjónusta öryggisvarða hentar mismunandi þörfum viðskiptavina hverju sinni. Tilgangur öryggisgæslu er að vernda verðmæti, húsnæði og auka öryggi starfsmanna og gesta. Flutningur á verðmætum og eftirlit með rýrnun í verslunum eru meðal fjölbreyttra verkefna öryggisvarða sem hafa hlotið þar til gerða þjálfun. Öryggisverðir okkar eru á vaktinni allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Staðbundin öryggisgæsla felur í sér að öryggisvörður annast öryggisgæslu á tiltekinni staðsetningu. Öryggisverðir okkar hafa hlotið alla viðeigandi þjálfun í viðbrögðum við aðstæðum sem upp geta komið.
Vaktferðir eða frágangsferðir um húsnæði að loknum vinnudegi geta verið gagnlegar til þess að tryggja frágang og koma þannig í veg fyrir óþarfa tjón, til dæmis af völdum skemmdarverka, innbrota, bruna og veðuráhrifa.
Mikilvægt er að tryggja að verðmæti séu flutt á milli staða með viðeigandi hætti og með öryggi að leiðarljósi. Öryggismiðstöðin býður sérstaka þjónustu öryggisvarða við verðmætaflutninga.
Öryggismiðstöðin starfrækir umfangsmikla og fjölbreytta öryggisþjónustu, undir nafninu AVIÖR, gagnvart flugvernd á Keflavíkurflugvelli og hefur öðlast þar mikla reynslu og sérþekkingu.
Öryggismiðstöðin býður verslunarfyrirtækjum þjónustu við rýrnunareftirlit, þar sem sérhæfðir og þaulreyndir starfsmenn greina frávik í eftirlitsmyndavélakerfi viðskiptavina og fylgjast með kerfum í fjarvöktun.
Öryggismiðstöðin býður upp á sérsniðna þjónustu við símsvörun og neyðarsímsvörun fyrir fyrirtæki utan hefðbundins opnunartíma þeirra.
Öryggismiðstöðin sér um að vakta boðin sem koma frá öryggiskerfi þínu, alla daga ársins, allan sólarhringinn. Við tryggjum tafarlaus viðbrögð ef þess gerist þörf með því að senda öryggisvörð á staðinn.
Öryggismiðstöðin býður viðskiptavinum sínum öryggisnámskeið fyrir starfsfólk í í afgreiðslu- og þjónustustörfum sem getur alltaf átt hættu á því að lenda í einstaklingum sem sýna ógnandi hegðun.