Aðgangskerfi
Yfirsýn um aðgengi
Auðvelt er að stýra aðgengi að húsakynnum, svæðum og þjónustu með aðgangskerfum. Enn fremur er hægt að tengja saman fjölbreytta virkni aðgangskerfa við öryggiskerfi, greiðslulausnir, myndeftirlit og annarra kerfa sem þörf er á hverju sinni. Við sérsníðum lausnir eftir þörfum og óskum viðskiptavina hverju sinni.

Aðgangskerfi
Aðgangskerfi gera notendum kleift að halda utan um aðgangsheimildir. Þau tryggja meðal annars rekjanleika aðgengis með aðgangsheimildum á aðgangskorti eða farsímaskilríkjum sem skilgreina heimildir til umgengni.
- Yfirsýn yfir allar aðgangsheimildir
- Öruggt, einfalt og snjallt utanumhald
- Tímabundinn og skilyrtur aðgangur
- Aðgangskort eða símaskilríki
- Ítarleg atburðaskráning

Hótellæsingakerfi
Hótellæsingakerfi fyrir hótel og gistiheimili auka öryggi gesta og skilvirkni starfsmanna við útgáfu lykla að hótel- og gistirýmum og fást í mörgum útfærslum eftir ólíkum aðstæðum.
- Margar útfærslur mögulegar
- Miðlæg stjórnun aðgangsheimilda
- Aðgangskort eða farsímaskilríki

Aðgangskerfi fyrir baðstaði
Aðgangskerfi fyrir baðstaði er rekstarkerfi sem heldur utan um skráningu viðskiptavina og aðgangsheimildir í gegnum gönguhlið. Við kerfin er hægt að tengja fjölbreytt úrval skápalæsinga fyrir mismunandi aðstæður.
- Skráning og aðgangsheimildir gesta
- Tenging við skápalæsingar
- Aðgangskort og armbönd í úrvali

Göngu- og aksturshlið
Aðgangsstýrð hlið gefa fyrirtækjum möguleika á að stýra aðgangi að tilteknum svæðum, innan eða utandyra.
- Starfsmannasvæði
- Bílastæði
- Sumarhúsasvæði
- Vörumóttökusvæði

Bílastæðakerfi
Bílastæðakerfi stýra aðgengi bifreiða um bílastæði. Þau byggja á greiningartækni þar sem myndavélar lesa bílnúmer og greina aðgangsheimildir með tengingu við gagnagrunn.
- Háþróuð greiningartækni
- Tenging við bifreiðaskrá
- Greiðsluvélar fyrir gjaldtöku
- Margar útfærslur í boði

Aðgangskort og prentun
Ýmsar tegundir aðgangskorta eru fáanlegar hjá Öryggismiðstöðinni í helstu stöðlum eins og SEOS Iclass, Prox, Mifare, Desfire, og stafræn aðgangskort í síma eða spjaldtölvu.
- Margar tegundir korta
- Farsímaskilríki
- Prentarar fyrir kort
- Ýmsir aukahlutir og festingar

Dyrasímakerfi
Dyrasímakerfi með myndeftirliti eru sífellt að verða vinsælli hvort sem um er að ræða einbýli eða fjölbýlishús af öllum stærðum og gerðum eða fyrirtæki sem vill stýra aðgengi gesta með dyrasímakerfi.
- Myndeftirlit
- Samskipti með mynd og tali
- Samþætting við önnur kerfi