Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Öryggiskerfi

Verjum verðmæti

Öryggiskerfi eru mikilvægar lausnir til þess að auka öryggi í umhverfi okkar. Mikilvægt er að hafa í huga að rétt valin og rétt hönnuð lausn fyrir mismunandi aðstæður skiptir öllu máli. Fjölbreyttar lausnir eru í boði til þess að verja fólk, húsnæði og önnur verðmæti fyrir hinum ýmsu vágestum.

Heimilisöryggi

Heimilisöryggi er öryggiskerfi fyrir heimili, sumarhús og minni fyrirtæki. Þar mætast hefðbundnar öryggislausnir og snjalllausnir sem gera þér kleift að stjórna öryggiskerfinu hvenær og hvaðan sem er í appi í snjallsíma eða spjaldtölvu.

Margvíslegir möguleikar
  • Stjórn og yfirsýn hvar og hvenær sem er
  • Fjölbreytt úrval skynjara
  • Tengingar við annan þráðlausan búnað
  • Sjálfvirkar reglur
  • Stýrðu mörgum Snjallkerfum í sama appi
Nánar

Fyrirtækjaöryggi

Með Fyrirtækjaöryggi má draga úr hættu á innbrotum og oft og tíðum koma í veg fyrir óbætanlegt tjón. Þjónustan er algerlega sniðin að þínum þörfum.

Margvíslegir möguleikar
  • Innbrotaviðvörun
  • Vöktun
  • Kerfi tengd stjórnstöð
  • Viðvörunarkerfi
  • Brunavarnir
Nánar

Verðmætaskápar

Flestir eiga verðmæti eins og mikilvæg skjöl, afrit af tölvugögnum, vegabréf, skartgripi og fleira, sem best eru geymd á öruggum stað.

Margvíslegir möguleikar
  • Verðmætaskápar af öllum gerðum
  • Skjalaskápar
  • Lyklaskápar og öryggishólf
  • Öryggishurðir
Nánar

Vöruvernd

Vöruverndarhlið fyrir verslanir eru fáanleg fyrir fjölbreyttar aðstæður. Þau hafa bæði fælandi áhrif ásamt því að virkja viðvörun fari vara út úr verslun án þess að greitt hafi verið fyrir.

Margvíslegir möguleikar
  • Vöruverndarmerki í mörgum útgáfum
  • Öryggissnúrur fyrir dýr tæki
  • Miðlægt stjórnkerfi
Nánar

Skimunarlausnir

Skimunarlausnir til öryggisleitar fást í fjölbreyttu úrvali. Ólíkar útfærslur henta við mismunandi aðstæður eins og til dæmis fyrir flugvelli, hafnir og fangelsi.

Margvíslegir möguleikar
  • Gegnumlýsingarbúnaður
  • Snefilgreinir
  • Málmleitarhlið
Nánar

Neyðarlýsingarkerfi

Neyðarlýsingarkerfi eru neyðarljós sem sett eru upp á valin svæði og miðast við lágmarkslýsingu sem kviknar sjálfkrafa við straumrof. Tilgangur þeirra er að skapa öryggi, vernda líf og heilsu verði rof á rafmagni.

Margvíslegir möguleikar
  • Neyðarlýsing við straumrof
  • Sjálfvirkar virkniprófanir
  • Miðlægur stjórnbúnaður
Nánar