Reglubundið eftirlit öryggiskerfa
Reglubundið eftirlit öryggiskerfa
Reglubundið eftirlit öryggiskerfa er liður í því að rekstur öryggiskerfa til lengri tíma sé sem bestur og virkni kerfanna aðlöguð að þeim breytingum sem óhjákvæmilega verða á byggingum.

Reglubundið eftirlit er nauðsynlegt
Reglubundið eftirlit öryggiskerfa er liður í því að rekstur öryggiskerfa til lengri tíma sé sem bestur og virkni kerfanna aðlöguð að þeim breytingum sem óhjákvæmilega verða á byggingum.
Reglubundið eftirlit minnkar líkur á alvarlegum bilunum, eykur öryggi kerfanna og lengir líftíma þeirra.
Krafa um árlega úttekt
Í byggingum þar sem krafa er gerð um viðurkennd brunaviðvörunarkerfi er einnig krafa frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þess efnis að brunaviðvörunarkerfi séu yfirfarin árlega af aðilum sem hafa til þess réttindi.
Gerðar eru úttektarskýrslur í framhaldi af reglulegu eftirliti þar sem upplýst er um ástand kerfis og skráðar niður athugasemdir um frávik á virkni kerfis og/eða að aðstæður húsnæðis hafi breyst á þann hátt að gera þurfi breytingar á því.
Viðurkenndir sérfræðingar
Allir sérfræðingar Öryggismiðstöðvarinnar í prófunum fara á námskeið hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og hafa hlotið viðurkenningu og starfsleyfi til þess að sinna reglubundnu eftirliti brunaviðvörunarkerfa.
Þá sækja sérfræðingar okkar reglulega námskeið hjá framleiðendum öryggisbúnaðar til þess að tryggja fagleg vinnubrögð og þekkingu á þeim lausnum sem Öryggismiðstöðin veitir og þjónustar.
Tengdar vörur

IMOU Cruiser

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra


Pantaðu tíma hjá ráðgjafa
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um reglubundið eftirlit öryggiskerfa.
Eða hringdu í síma
570 2400