Það er mikilvægt að forsvarsaðilar stofnana og fyrirtækja tryggi eldvarnir í sínu starfsumhverfi og eftirlit með þeim. Veiti starfsfólki fræðslu og viðeigandi þjálfun í notkun á búnaði og réttum viðbrögðum við eldsvoða.
Öryggismiðstöðin býður fjölbreytta þjónustu eldvarnareftirlits og fræðslu um brunavarnir í umsjón sérfræðinga, auk þess að sinna alhliða eldvarnarþjónustu fyrir stofnanir og fyrirtæki.
Samkvæmt lögum 723/2017 er það lögbundin skylda allra eigenda og forráðamanna atvinnuhúsnæðis að framkvæma „eigið eldvarnareftirlit“ með reglubundnum hætti. Það er alfarið á ábyrgð húseigenda að brunavarnir standist þær kröfur sem gerðar eru með lögum og reglugerðum. Markmið eldvarnareftirlits er að vernda líf, heilsu, umhverfi og eignir í samræmi við gildandi lög um brunavarnir. Mörgum fyrirtækjum reynist erfitt að framfylgja þessari skyldu og yfirfara brunavarnir með reglubundnum hætti; uppfæra búnað, gera viðbragðs- og rýmingaráætlanir o.s.frv.
Öryggismiðstöðin býður fyrirtækjum og stofnunum upp á alhliða eldvarnarþjónustu sem leysir af hólmi þá kvöð sem felst í eldvarnareftirliti.
Þetta er heildstæð lausn og þjónustan tekur mið af reglugerð um eigið eftirlit og nær yfir alla þætti brunavarna í atvinnuhúsnæði, framkvæmd af sérfræðingum í faginu og skjalfest að eftirliti loknu.
Eldvarnareftirlit í atvinnuhúsnæði er lögbundin skylda húseigenda.
Eldvarnarþjónusta Öryggismiðstöðvarinnar leysir þá skyldu af hendi með þjónustusamningi.
Það er einföld lausn á flókinni kvöð fyrir stofnanir og fyrirtæki að láta sérfræðinga okkar sjá um allt eldvarnareftirlit.
Hafið samband og kynnið ykkur eldvarnarþjónustu Öryggismiðstöðvarinnar.
Reglugerð um eigið eftirlit eigenda og forráðamanna með brunavörunum í atvinnuhúsnæði.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um eigið eldvarnaeftirlit.
Eða hringdu í síma
570 2400