Eldvarnarnámskeið
Eldvarnarnámskeið
Öryggismiðstöðin býður upp á námskeið í eldvörnum. Á námskeiðinu er farið yfir margvíslega þætti í tengslum við eldvarnir líkt og forvarnir, viðbrögð og beitingu handslökkvitækja.

Eldvarnir og meðferð slökkvitækja
Öryggismiðstöðin býður upp á námskeið í eldvörnum.
Á námskeiðinu er farið yfir fyrstu viðbrögð við aðsteðjandi hættu og forgangsröðun aðgerða. Hvað auðveldlega er hægt að gera til þess að minnka líkur á eldsvoða og óhöppum.
Eftirfarandi atriðum eru gerð góð skil á námskeiðinu:
- Hvað eldur er
- Helstu gerðir elds
- Útbreiðsluhætta
- Í hverju kviknar helst
- Helstu gerðir slökkvitækja
- Staðsetning slökkvitækja
- Hvaða tæki eru á vinnustaðnum
- Beiting slökkvitækja
- Mikilvægi reykskynjara
- Viðbrögð við boðum frá brunaviðvörunarkerfum
- Hvað brunavarnir eru í raun
- Gildi þess að hafa brunavarnir í lagi
Markmið
Markmið námskeiðsins er að starfsfólk viti hvernig bregðast skuli við eldsvoða, hvernig hægt er að draga úr líkum á eldsvoða og kunni að beita handslökkvitækjum.
Verklegar æfingar geta líka verið hluti af námskeiðinu þar sem þátttakendur fá tækifæri til þess að æfa sig í notkun slökkvitækja.
Tengdar vörur

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra
Netverð
9.353 kr
Almennt verð
14.389 kr

Optískur reykskynjari - stakur
Netverð
1.728 kr
Almennt verð
2.468 kr

Eldvarnarteppi 1,1x1,1 mtr.
Netverð
3.747 kr
Almennt verð
4.996 kr

Reyk- og hitaskynjari samtengjanlegur með 10 ára rafhlöðuendingu
Netverð
9.926 kr
Almennt verð
12.407 kr


Pantaðu tíma hjá ráðgjafa
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um öryggisnámskeið.
Eða hringdu í síma
570 2400