Blogg
Brunavarnir í gripahúsum og öðrum útihúsum

Brunaviðvörunarkerfi bjarga lífum og eignum
Þegar eldur kviknar geta réttar brunavarnir skipt sköpum. Því fyrr sem viðvörun berst, því meiri líkur eru á að lágmarka tjón og koma í veg fyrir slys.
Reyksogskerfi fyrir gripahús
Gripahús eru viðkvæm fyrir eldsvoða og því nauðsynlegt að þau séu búin áreiðanlegum viðvörunarkerfum. Ein hentugasta lausnin er reyksogskerfi sem hentar vel í rykugum og köldum rýmum.
Brunavöktun með reyksogskerfi er næm, en áreiðanleg vöktun. Í slíku kerfi liggur röralögn með götum á ákveðnu bili um rýmið sem á að vakta.. Götin eru skynjunarpunktar kerfisins, síðan er loftdæla í stjórnstöð sem sogar stöðugt loftsýni í gegn um götin að skynjara reyksogskerfisins.
Kerfi hafa margþætt viðvörunarstig og breitt næmnisvið sem hægt er að stilla eftir þörfum. Ef reykur greinist virkjar kerfið hljóðgjafa og sendir boð til vaktmiðstöðvar og/eða í síma ábyrgðaraðila.
Þessi tegund brunaviðvörunarkerfa hentar sérstaklega vel í fjósum, hesthúsum og öðrum gripahúsum þar sem eldsupptök geta verið margvísleg og hefðbundnir reykskynjarar óhentugir sökum tíðra falsboða.
Rýming og reglulegt eftirlit
Mikilvægt er að prófa brunaviðvörunarkerfi reglulega og yfirfara allar brunavarnir að lágmarki einu sinni á ári.
Mikilvægt er að rýmingaráætlanir séu til staðar og flóttaleiðir séu vel merktar og greiðfærar fyrir bæði menn og dýr. Reglulegar æfingar geta gert gæfumuninn ef upp kemur eldur.