Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Blogg

Mikilvægi öflugra brunavarna á heimilum

Reykskynjarar bjarga mannslífum og best er að hafa reykskynjara í öllum herbergjum.

Í stærra húsnæði er gott að hafa þá samtengda og þá pípa allir ef einn fer í gang. Einnig er hægt að tengja reykskynjara við öryggiskerfi sem er vaktað allan sólarhringinn, alla daga ársins, af stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar.

Það er mikilvægt að skipta um rafhlöðu í reykskynjurum reglulega. Nýlegir reykskynjarar hafa orðið 5-10 ára líftíma á rafhlöðu en gott að ganga úr skugga um virkni þeirra með því að prófa þá á hverju ári og skipta um rafhlöður í þeim sem ekki hafa slíkan rafhlöðu líftíma. 1. desember er dagur reyskynjarans og því vel við hæfi að nýta hann til þess. Mælt er með að skipta út reykskynjurum á 10 ára fresti.

Eldvarnarteppi ættu að vera á hverju heimili, á sýnilegum stað þar sem hægt er að grípa í það fljótt og vel komi upp eldur. Eldvarnarteppi geta reynst notadrjúg á minni elda svo sem ef eldur kviknar í feiti í steikingarpotti, blómaskreytingum eða minni raftækjum. Athugið að reyna ekki að slökkva elda í steikingarfeiti eða raftækjum með vatni, notið eldvarnarteppi.

Slökkvitæki þurfa að vera til staðar og sýnileg bæði gestum og gangandi. Rétt staðsetning þeirra er við flóttaleiðir eins og útganga og í anddyri. Yfirfara þarf slökkvitæki með reglulegum hætti, yfirfara þrýsting og fyllingar þeirra. Öryggismiðstöðin rekur slökkvitækjaverkstæði í Askalind 1 í Kópavogi þar sem tekið er á móti tækjum til yfirferðar og þjónustu.

Mikilvægt er að tryggja að flóttaleiðir séu til staðar úr öllum rýmum og að það séu að lágmarki tvær greiðar flóttaleiðir út íbúð. Hægt er til dæmis að fá handhæga stiga sem kastað er út um glugga á efri hæðum komi til þess að flóttaleiðir lokist vegna reyks eða elds.

Tengdar vörur

Eldvarnapakki 1

Eldvarnapakki 1

Netverð 17.900 kr
Almennt verð 19.710 kr
Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Netverð 11.224 kr
Almennt verð 15.397 kr
Ekki til á lager
Optískur reykskynjari - stakur

Optískur reykskynjari - stakur

Netverð 2.045 kr
Almennt verð 2.468 kr
Ekki til á lager
Eldvarnarteppi 1,1x1,1 mtr.

Eldvarnarteppi 1,1x1,1 mtr.

Netverð 3.747 kr
Almennt verð 4.996 kr
Ekki til á lager

Þengill Ólafsson

Viðskiptastjóri Sala og ráðgjöf
Kristófer Lúðvíksson

Kristófer Lúðvíksson

Öryggisráðgjafi Sala og ráðgjöf

Pantaðu tíma í ráðgjöf

Ráðgjafar okkar eru við símann núna.

Eða hringdu í síma

570 2400