Blogg
Rýrnun í verslunum á Íslandi er raunverulegt vandamál og þar getur tæknin orðið til gagns

Rýrnun virðist vera sívaxandi vandamál hjá íslenskum verslunum og sífellt fleiri freista þess að taka vörur ófrjálsri hendi án þess að greiða fyrir. Um er að ræða smáþjófnaði eins og hnupl upp í stærri og skipulagðari þjófnaði.
Með nútíma vöruverndartækni er hægt að tengja vöruverndarhlið við eftirlitsmyndavélar. Þessar lausnir geta greint þegar að vara fer út úr verslun án þess að hafa farið í gegnum afgreiðslukerfi til greiðslu. Vöruverndarhlið eru beintengd myndavélum sem senda skilaboð með myndefni beint til ábyrgðaraðila öryggismála viðkomandi verslunar sem getur þá brugðist tafarlaust við. Kerfið sendir viðvörun sem tilkynningu í app í síma eða tölvu.
Slík viðbragðsgeta skiptir sköpum. Hún dregur úr líkum á þjófnaði, hefur mikinn fælingarmátt og gerir verslun kleift að kalla til lögreglu með upplýsingar úr myndavélakerfum sem hægt er að nýta til rannsóknar á þjófnaði og upplýsa.
Mikilvægt er að huga að persónuvernd við innleiðingu á notkun myndavéla með skýrum verkferlum og fræðslu fyrir starfsfólk.
Með því að nýta nútímatækni og myndgreiningu samhliða notkun vöruverndarhliða geta verslanir dregið verulega úr rýrnun.
Sérfræðingar Öryggismiðstöðvarinnar veita alla frekari ráðgjöf við val á lausnum.