Blogg
Vingcard hótellæsingar og hótellæsingakerfi í fararbroddi
Vingcard hefur verið leiðandi framleiðandi á nútíma hótellæsingakerfum síðustu áratugina og lagt áherslu á öryggi með áreiðanleika í fyrirrúmi.
Nýjasta hurðalæsingalausnin, Novel, er afrakstur áratuga reynslu í þróun slíkra lausna fyrir hótel um allan heim. Novel sameinar nútímalega hönnun og hámarks öryggi.
Læsingarnar sem eru þráðlausar styðja hefðbundin lykla- og aðgangskort og opnun með snjallsíma. Hurðalæsingarnar eru orkusparandi, hljóðlátar og gerðar fyrir mikla notkun sem einkennir hótel umhverfi. Þær henta bæði til notkunar innan- og utandyra.
Hótellæsingarnar hafa einnig fengið verðlaun Red Dot fyrir framúrskarandi hönnun og fást í nokkrum mismunandi litum og útliti.
Vostio hugbúnaður sem einfaldar reksturinn
Stjórnun aðganga að hurðalæsingum fer fram í gegnum Vostio, öflugri skýjalausn sem gerir hótelum kleift að stjórna öllu hurðalæsingakerfinu á einfaldan og skilvirkan hátt í gegnum notendavænt viðmót. Með Vostio er hægt að útbúa, breyta og afturkalla aðgangsheimildir í rauntíma, óháð staðsetningu. Nákvæm atburðaskráning eykur öryggis gesta, rekjanleika og veitir stjórnendum yfirsýn.
Hugbúnaðurinn tengist auðveldlega bókunarkerfum og öðrum hótelkerfum sem dregur úr handavinnu, minnkar líkur á mistökum og bætir upplifun bæði starfsfólks og gesta. Niðurstaðan er meiri sjálfvirkni, betri yfirsýn og hagkvæmari rekstur.
Öryggi, þægindi og betri upplifun gesta
Saman mynda Novel og Vostio heildstæða lausn sem styrkir ímynd hótelsins, eykur öryggi og skapar nútímalega og þægilega upplifun fyrir gesti.
Fyrir þá sem vilja sameina áreiðanleika, nýjustu tækni og sterkt vörumerki eru lausnir Vingcard góður valkostur sem hentar fyrir allar stærðir gistihúsa og hótela.
Smelltu hér til að hafa samband við sérfræðinga okkar sem veita ráðgjöf við val á hentugri lausn.
Smelltu hér til að sjá bæklinginn frá Vingcard.