Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Almennar fréttir

Framtakssjóðurinn VEX I kaupir hlut í Öryggismiðstöðinni

Framtakssjóðurinn VEX I hefur náð samkomulagi um kaup á um 45% hlutafjár í Öryggismiðstöðinni og eru kaupin nú til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Seljendur eru Hlér ehf., Nóra Capital ehf., Daði Þór Veigarsson og Seldalur ehf. og auk þess selur Laugarfell ehf. að hluta.

Hluthafar Öryggismiðstöðvarinnar eftir viðskiptin verða, ásamt VEX I, Laugarfell ehf., nokkrir lykilstarfsmenn félagsins og Feier ehf., félag í eigu Hjörleifs Jakobssonar og Hjördísar Ásberg, en Feier eykur lítillega við hlut sinn í viðskiptunum.

Öryggismiðstöðin er öflugt fyrirtæki sem vaxið hefur jafnt og þétt yfir langt tímabil. Félagið býr yfir reynslumiklum hópi starfsfólks sem hefur tekist að fjölga tekjustoðum á sviðum þar sem við sjáum tækifæri til að sækja enn frekar fram. Við hlökkum til að hefja þá vinnu með stjórnendum, starfsmönnum og öðrum hluthöfum félagsins, segir Benedikt Ólafsson, eigandi hjá VEX ehf.

VEX I er tíu milljarða framtakssjóður í stýringu VEX ehf. Sjóðurinn fjárfestir í óskráðum fyrirtækjum, sem eru að sækja nýtt hlutafé til vaxtar. VEX I hefur einnig fjárfest í fyrirtækjunum AGR, Annata, Icelandic Provisions og OK.

Við í Öryggismiðstöðinni tökum fagnandi á móti VEX og höfum trú á því að tilkoma þeirra hafi jákvæð áhrif á okkar metnaðarfullu markmið. Fyrirtækið er í öflugum vexti og stöðugri þróun, segir Ragnar Þór Jónsson, forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar.